Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 751–800 af 3846
    Raða eftir:
    29. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1175/2024. Úrskurður frá 29. febrúar 2024

    Óskað var eftir upplýsingum hjá Reykjavíkurborg um það hvort skólastjóri tiltekins skóla hefði sætt viðurlögum vegna atviks sem varðaði son kæranda. Reykjavíkurborg hafnaði beiðninni með vísan til þess að upplýsingarnar vörðuðu starfsmannamál sem réttur almennings samkvæmt upplýsingalögum næði ekki til. Úrskurðarnefndin taldi að gögn í málum um beitingu stjórnsýsluviðurlaga á borð við áminningu teldust varða starfssamband viðkomandi starfsmanns að öðru leyti í skilningi 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Ákvörðun Reykjavíkurborgar var því staðfest.

    28. feb. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samantekt frá þriðja fundi Jafnréttisráðs - samráðsvettvangs um jafnréttismál

    Samantekt frá þriðja fundi Jafnréttisráðs – samráðsvettvangs um jafnréttismál hefur verið birt. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra boðaði til þriðja fundar samráðsvettvangsins þann 6. desember 2023 en þema fundarins var hatursorðræða.

    27. feb. 2024Sjálfbært Ísland, Forsætisráðuneytið

    Drög að stefnu Íslands um sjálfbæra þróun birt í Samráðsgátt

    Hvítbók um sjálfbært Ísland sem felur í sér drög að stefnu Íslands um sjálfbæra þróun til 2030 hefur verið birt í Samráðsgátt stjórnvalda. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti drögin á fundi ríkisstjórnar sl. föstudag.

    26. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málþing með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz

    Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, föstudaginn 1. mars kl. 12-13.30.

    21. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1174/2024. Úrskurður frá 21. febrúar 2024

    Kærandi taldi umboðsmann barna ekki hafa svarað erindum sínum efnislega með málefnalegum rökum og gerði þar að auki athugasemd við að erindunum væri svarað nafnlaust. Úrskurðarnefndin taldi að fyrirspurnir kæranda til umboðsmanns barna teldust ekki varða fyrirliggjandi gögn í vörslum stofnunarinnar. Því hefði ekki verið tekin ákvörðun í málinu sem væri kæranleg til úrskurðarnefndarinnar og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    21. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1173/2024. Úrskurður frá 21. febrúar 2024

    Óskað var eftir athugun dómsmálaráðuneytis á því hvers vegna þinglýstur lóðarleigusamningur fyndist ekki hjá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum. Í kæru kom fram að erindinu hefði ekki verið svarað. Ráðuneytið kvað erindi kæranda ekki hafa borist. Úrskurðarnefndin taldi í samræmi við það að ekki væri hægt að líta svo á að dráttur hefði orðið á afgreiðslu erindis hans, og var kærunni vísað frá nefndinni.

    21. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1171/2024. Úrskurður frá 21. febrúar 2024

    Óskað var eftir gögnum um rafræna hillumiða o.fl. hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Beiðninni var hafnað með vísan til þess að afhending gagnanna myndi skaða samkeppnishagsmuni ÁTVR og mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Origo hf. Úrskurðarnefndin taldi að gögnin vörðuðu ráðstöfun opinberra fjármuna og að hagsmunir almennings af að fá aðgang að þeim vægju þyngra en hagsmunir Origo af því að þau færu leynt. Þá taldi nefndin að þó svo að fallist yrði á að ÁTVR ætti í samkeppni vörðuðu gögnin ekki svo verulega samkeppnishagsmuni ÁTVR að réttlætanlegt þætti að þeir gengju framar upplýsingarétti almennings. Úrskurðarnefndin lagði því fyrir ÁTVR að veita kæranda aðgang að gögnunum.

    21. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1172/2024. Úrskurður frá 21. febrúar 2024

    Óskað var eftir lagalegri greiningu á málum fyrir alþjóðadómstólum sem varða átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, sem rædd hefði verið á fundi ríkisstjórnarinnar. Utanríkisráðuneyti hafnaði beiðninni því minnisblöð til ríkisstjórnar væru undanþegin upplýsingarétti samkvæmt upplýsingalögum. Minnisblaðið hefði verið tekið saman fyrir fund ríkisstjórnarinnar. Úrskurðarnefndin taldi efni skjalsins styðja þá skýringu og var ákvörðun ráðuneytisins staðfest.

    15. feb. 2024Velsæld, Forsætisráðuneytið

    Nýtt vefsvæði um velsæld á vef Stjórnarráðsins

    Forsætisráðuneytið hefur opnað vefsvæði um velsæld á vef Stjórnarráðsins. Á vefsvæðinu eru veittar gagnlegar upplýsingar um velsældarvísa og velsældaráherslur ríkisstjórnarinnar.

    14. feb. 2024Utanríkismál, Evrópusamvinna, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið

    Uppfærsla á lista yfir forgangsmál stjórnvalda vegna hagsmunagæslu gagnvart ESB

    Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum sl. föstudag uppfærðan lista yfir forgangsmál í hagsmunagæslu Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB). Þar sem kosningar til Evrópuþingsins fara fram í júní nk. og ný framkvæmdastjórn ESB verður skipuð í kjölfarið hefur verið ákveðið að uppfæra og framlengja gildistíma forgangslista 2022-2023 fram á mitt ár 2024, eða til loka skipunartímabils núverandi framkvæmdastjórnar. Næsta heildarendurskoðun á forgangslistanum verður því miðuð við upphaf skipunartímabils nýrrar framkvæmdastjórnar.

    14. feb. 2024Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Samningar við Kvenréttindafélag Íslands og Samtökin ´78 undirritaðir

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra skrifaði í dag undir samninga við annars vegar Kvenréttindafélag Íslands og hins vegar Samtökin ´78.

    09. feb. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Grindavík

    Frumvarp um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík

    Ríkissjóður mun bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarði króna.

    05. feb. 2024Mennta- og barnamálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Stjórnvöld styðja við umsókn um að halda HM í handbolta á Íslandi

    Stjórnvöld lýsa yfir stuðningi sínum við umsókn um að halda heimsmeistaramótið í handbolta árið 2029 eða 2031 á Íslandi, í Danmörku og Noregi. Leikir á Íslandi færu fram í nýrri þjóðarhöll. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, undirrituðu yfirlýsingu þess efnis fyrir hönd stjórnvalda í Stjórnarráðshúsinu í dag.

    02. feb. 2024Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Herferðinni Orðin okkar hleypt af stokkunum

    Í gær hleypti Jafnréttisstofa af stokkunum herferðinni Orðin okkar með stuðningi forsætisráðuneytisins. Herferðinni er ætlað að hvetja fólk til umhugsunar um áhrifamátt orða sinna. Orð geta sært, sundrað og brotið niður en þau geta einnig nært, huggað og sameinað.

    26. jan. 2024Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Skýrslu um virðismat starfa í þágu launajafnréttis skilað til forsætisráðherra

    Aðgerðahópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launajafnrétti og jafnrétti á vinnumarkaði hefur skilað forsætisráðherra skýrslu sinni.

    23. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Matvælaráðherra í veikindaleyfi

    Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra er farin í tímabundið veikindaleyfi. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun gegna störfum matvælaráðherra á meðan veikindaleyfinu stendur.

    22. jan. 2024Grindavík, Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Aðgerðir til að tryggja örugga framtíð Grindvíkinga

    Ríkisstjórnin hefur í dag kynnt áform um aðgerðir sem miða að því að skapa forsendur fyrir öruggari framtíð fyrir Grindvíkinga og eyða þeirri óvissu sem hefur verið vegna fordæmalausra aðstæðna.

    18. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í kjölfar eldgoss við Grindavík 14. janúar 2024

    18 janúar 2024 / Forsætisráðuneytið Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í kjölfar eldgoss við Grindavík 14. janúar 2024 Þjóðin stendur nú andspænis hrikalegum náttúruöflum. Eldgos hófst í morgun og hraun streymir nú yfir byggðina í Grindavík

    18. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í kjölfar eldgoss við Grindavík 14. janúar 2024

    18 janúar 2024 / Forsætisráðuneytið Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í kjölfar eldgoss við Grindavík 14. janúar 2024 Þjóðin stendur nú andspænis hrikalegum náttúruöflum. Eldgos hófst í morgun og hraun streymir nú yfir byggðina í Grindavík

    18. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1170/2024. Úrskurður frá 18. janúar 2024

    Óskað var eftir kæru Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur til lögreglu í máli Vy-Þrifa ehf. Beiðninni var hafnað því kæran væri hluti af rannsókn sakamáls og þar með undanþegin gildissviði upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi ljóst að eftirlitið hefði ekki það hlutverk með höndum að rannsaka mál til að komast að raun um hvort refsiverð háttsemi hefði verið viðhöfð. Þá væri ljóst að gagnið hefði orðið til eftir að eftirlitið ákvað að vísa málinu til lögreglu. Því yrði réttur til aðgangs að gagninu ekki byggður á ákvæðum upplýsingalaga og var kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    18. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1169/2024. Úrskurður frá 18. janúar 2024

    Óskað var eftir gögnum Eignasafns Seðlabanka Íslands ehf. og Hildu ehf. í vörslum F fasteignafélags ehf. Beiðninni var hafnað með vísan til þess að félögin tvö hefðu verið undanþegin gildissviði upplýsingalaga meðan þau voru starfandi. Þá væri F fasteignafélag í slitameðferð og félli ekki undir gildissvið upplýsingalaga meðan á því stæði. Úrskurðarnefndin taldi að það að F fasteignafélag væri í slitameðferð þýddi ekki að félagið væri þar með undanþegið gildissviði laganna. Þá teldust gögn Eignasafns Seðlabanka Íslands og Hildu í vörslum F fasteignafélags vera undirorpin upplýsingarétti á grundvelli laganna. Beiðni kæranda var því vísað aftur til F fasteignafélags og lagt fyrir félagið að taka beiðnina til efnislegrar meðferðar og afgreiðslu.

    17. jan. 2024Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni

    Unnin hefur verið samantekt um aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldi og áreitni á árunum 2020-2023. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnti samantektina á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.

    10. jan. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stórt skref í átt að nýrri þjóðarhöll

    Stofnað hefur verið félag sem mun standa að byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhússíþróttum í Laugardal, Þjóðarhöll ehf. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri undirrituðu samning milli ríkis og Reykjavíkurborgar um stofnun félagsins í dag. Fyrsta verk Þjóðarhallar ehf. er að efna til forvals og samkeppni um hönnun og byggingu þjóðarhallarinnar. Auk þess tekur félagið við verkefnum framkvæmdanefndar um þjóðarhöll í Laugardal sem lætur af störfum.

    10. jan. 2024Forsætisráðuneytið

    Viðburðir í tilefni 80 ára afmælis lýðveldisins

    Íslenska lýðveldið fagnar á árinu sem nú er hafið 80 ára afmæli og verður tímamótanna minnst með ýmsum hætti.

    03. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1168/2023. Úrskurður frá 20. desember 2023

    Kærendur óskuðu svara hjá matvælaráðuneyti um það til hvaða ákvæða í lögum um stjórn fiskveiða og lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands reglugerð nr. 477/2011, um bann við notkun haukalóða við lúðuveiðar, sækti lagastoð sína. Ráðuneytið staðhæfði að ekki lægju fyrir nein gögn sem svöruðu spurningu kærenda. Þeim hefði hins vegar verið leiðbeint um það til hvaða ákvæða væri eðlilegt að líta til við mat á lagastoð reglugerðarinnar. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi samkvæmt þessu að kærendum hefði ekki verið synjað um aðgang að gögnum, og var kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    03. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1167/2023. Úrskurður frá 20. desember 2023

    Óskað var eftir upplýsingum hjá fjármála- og efnahagsráðuneyti um þann arf sem hefði tæmst til ríkissjóðs á grundvelli 55. gr. erfðalaga, nr. 8/1962, undanfarin fimm ár. Ráðuneytið kvað upplýsingarnar ekki liggja fyrir í ráðuneytinu og því væri ekki hægt að verða við beiðni kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi sig ekki hafa forsendur til að draga þá staðhæfingu í efa og var ákvörðun ráðuneytisins því staðfest.

    03. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1166/2023. Úrskurður frá 8. desember 2023

    Óskað var eftir svari Vinnueftirlitsins við því hvort tiltekinn skíðahjálmur væri viðurkenndur við löndun á sama hátt og byggingarvinnuhjálmur. Stofnunin svaraði ekki kæranda og var málinu því vísað til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Vinnueftirlitið taldi að beiðni kæranda rúmaðist ekki innan gildissviðs upplýsingalaga þar sem ekki væri óskað aðgangs að fyrirliggjandi gögnum heldur eftir afstöðu stofnunarinnar. Úrskurðarnefndin féllst á það að beiðnin lyti ekki að fyrirliggjandi gögnum í vörslum stofnunarinnar. Var kærunni því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    03. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1165/2023. Úrskurður frá 8. desember 2023

    Kærandi gerði kröfu um að fá afhent gögn máls hjá barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands. Í svari barnaverndarþjónustunnar kom fram að beiðnin væri afgreidd samkvæmt tilteknum verklagsreglum. Við meðferð málsins hjá úrskurðarnefnd um upplýsingamál upplýsti barnaverndarþjónustan að unnið væri að því að taka gögnin saman fyrir kæranda. Nefndin taldi því að kæranda hefði ekki verið synjað um aðgang að gögnum. Var kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.

    03. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1164/2023. Úrskurður frá 8. desember 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að símtali við fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra, þar sem óskað hafði verið eftir aðstoð lögreglu vegna kæranda, sem væri mættur í jarðarför óvelkominn. Ríkislögreglustjóri taldi að réttur kæranda byggðist á 1. mgr. 14. gr. upplýsingalaga, en að 3. mgr. sömu greinar kæmi í veg fyrir að honum yrði veittur aðgangur að símtalinu. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að kærandi hefði hagsmuni af því að fá heildstæða mynd af tildrögum og ástæðum þess að lögreglan var kölluð til. Féllst nefndin því á rétt kæranda til aðgangs að símtalinu.

    03. jan. 2024Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1163/2023. Úrskurður frá 8. desember 2023

    Kærandi óskaði eftir gögnum sem kynnt hefðu verið á fundi sveitarstjórnar sveitarfélags. Sveitarfélagið kvað gögnin aðeins hafa verið kynnt á fundinum en ekki afhent sveitarfélaginu. Þau teldust því ekki fyrirliggjandi í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál vísaði til þess að sem sveitarstjórnarfulltrúi hefði kærandi rýmri rétt til aðgangs að umbeðnum gögnum á grundvelli 28. gr. sveitarstjórnarlaga en samkvæmt upplýsingalögum. Ákvörðun sveitarfélagsins yrði þannig ekki kærð til úrskurðarnefndarinnar og var kærunni því vísað frá nefndinni.

    31. des. 2023Forsætisráðuneytið

    Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti landsmönnum áramótaávarp sitt í kvöld.

    31. des. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 31. desember 2023

    31 desember 2023 / Forsætisráðuneytið Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 31. desember 2023 Ágætu landsmenn! Í vikunni birtist könnun þar sem fram kom að landsmenn eru bjartsýnir á komandi ár og telur meirihluti að árið verði betra en árið sem nú rennur sitt skeið. Ég er ein af þeim sem tilheyri þessum meirihluta

    31. des. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 31. desember 2023

    31 desember 2023 / Forsætisráðuneytið Áramótaávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra 31. desember 2023 Ágætu landsmenn! Í vikunni birtist könnun þar sem fram kom að landsmenn eru bjartsýnir á komandi ár og telur meirihluti að árið verði betra en árið sem nú rennur sitt skeið. Ég er ein af þeim sem tilheyri þessum meirihluta

    28. des. 2023Forsætisráðuneytið

    Ríkisráðsfundur á Bessastöðum á gamlársdag

    Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman til reglulegs fundar á Bessastöðum sunnudaginn 31. desember nk., kl. 11.00.

    28. des. 2023Jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Áframhaldandi stuðningur við verkefnið Sjúktspjall

    Forsætisráðuneytið og Stígamót hafa gert með sér samning um áframhaldandi stuðning við verkefnið Sjúktspjall. Ráðuneytið styrkir verkefnið um 12 milljónir króna samkvæmt samningnum sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, undirrituðu í dag.

    20. des. 2023Atvinnuvegaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Neytendamál

    Ríkisstjórnin styrkir ASÍ vegna átaksverkefnis í verðlagsmálum

    Ríkisstjórn Íslands ákvað á fundi sínum í gær að styrkja verðlagseftirlit ASÍ með 15 m. kr. framlagi vegna átaksverkefnis í verðlagsmálum. Markmið verkefnisins er að auka upplýsingagjöf til neytenda og skapa virkt aðhald með verðlagi á neytendamarkaði til að styðja við lækkun verðbólgu í aðdraganda kjarasamninga.

    18. des. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra bauð samráðsvettvangi um jafnréttismál til fundar

    Hatursorðræða var til umræðu á þriðja fundi samráðsvettvangs um jafnréttismál í Hannesarholti 6. desember sl. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra bauð til fundarins en skv. lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal samráðsvettvangurinn kallaður saman minnst einu sinni á ári.

    14. des. 2023Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Haustskýrsla Kjaratölfræðinefndar 2023

    Í nýrri skýrslu Kjaratölfræðinefndar sem birt var í morgun er fjallað er um þróun efnahagsmála og launa í yfirstandandi kjarasamningalotu sem og uppgjör vegna síðustu kjarasamningalotu árin 2019 til 2022.

    13. des. 2023Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með forseta Úkraínu

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, í Osló.

    13. des. 2023Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forseti Úkraínu gestur á leiðtogafundi Norðurlandanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr Zelenzky, forseta Úkraínu, í Osló í dag. Gestgjafi fundarins er Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, en aðrir þátttakendur eru Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, Sauli Niinistö, forseti Finnlands, og Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar.

    12. des. 2023Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra tók þátt í viðburði í tilefni 75 ára afmælis Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tók í dag þátt í viðburði í Genf í tilefni af 75 ára afmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna.

    11. des. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Baráttan fyrir mannréttindum í 75 ár - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 11. desember 2023

    11 desember 2023 / Forsætisráðuneytið Baráttan fyrir mannréttindum í 75 ár - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 11. desember 2023 „Allir eru bornir frjálsir og jafnir öðrum að virðingu og réttindum. “ Svo hljóðar fyrsta grein í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var á allsherjarþingi aðildarríkjanna í París hinn 10

    11. des. 2023Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Baráttan fyrir mannréttindum í 75 ár - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 11. desember 2023

    11 desember 2023 / Forsætisráðuneytið Baráttan fyrir mannréttindum í 75 ár - grein Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra í Morgunblaðinu 11. desember 2023 „Allir eru bornir frjálsir og jafnir öðrum að virðingu og réttindum. “ Svo hljóðar fyrsta grein í Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna sem samþykkt var á allsherjarþingi aðildarríkjanna í París hinn 10

    08. des. 2023Forsætisráðuneytið

    Breytingar á siðareglum ráðherra

    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur staðfest breytingar á siðareglum ráðherra og hafa uppfærðar reglur verið birtar í Stjórnartíðindum.

    08. des. 2023Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Forsætisráðuneytið

    Leigutorg fyrir íbúa Grindavíkur opnað

    Klukkan 14 í dag verður opnað leigutorg á Ísland.is fyrir íbúa Grindavíkur. Þar verður hægt að skoða leiguíbúðir sem skráðar hafa verið í kjölfar auglýsingar þar sem óskað var eftir húsnæði til að leysa tímabundið úr húsnæðisþörf Grindvíkinga. Margir hafa brugðist við, en á torginu eru um 150 eignir auglýstar til leigu á Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu og víðar. Áfram verður tekið við skráningum á leigueignum á Ísland.is.

    05. des. 2023Rit og skýrslur, Innflytjendur, Forsætisráðuneytið

    Skýrsla um árangur í móttöku og aðlögun erlendra ríkisborgara

    desember 2023 / Forsætisráðuneytið Skýrsla um árangur í móttöku og aðlögun erlendra ríkisborgara Skýrsla um árangur í móttöku og aðlögun erlendra ríkisborgara

    03. des. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1162/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að samningum sem Happdrætti Háskóla Íslands hefði gert um rekstur á happdrættisvélum. Synjun Happdrættis Háskóla Íslands var byggð á 2. málsl. 9. gr. og 4. tölul. 10. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að samningarnir teldust ekki varða mikilvæga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni viðsemjenda Happdrættis Háskóla Íslands og að 2. málsl. 9. gr. upplýsingalaga stæði aðgangi kæranda þannig ekki í vegi. Þá taldi nefndin að jafnvel þótt gögnin vörðuðu að einhverju leyti samkeppnisrekstur Happdrættis Háskóla Íslands fælu þau ekki í sér upplýsingar sem væru til þess fallnar að valda Happdrætti Háskóla Íslands tjóni ef veittur yrði aðgangur að þeim. Var Happdrætti Háskóla Íslands því gert skylt að afhenda kæranda samningana.

    03. des. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1161/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Málið varðaði beiðni til ríkislögreglustjóra um gögn sem vörðuðu brottvísun umbjóðanda beiðandans. Ríkislögreglustjóri taldi umboð beiðanda ekki vera gilt og leit því svo á að réttur hans færi samkvæmt 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, um upplýsingarétt almennings. Úrskurðarnefndin taldi að það umboð sem lægi fyrir í málinu skyldi teljast gilt og að ríkislögreglustjóra hefði borið að afgreiða beiðni beiðanda líkt og hún hefði komið frá umbjóðanda hans. Á hinn bóginn væri til þess að líta að ákvörðun um brottvísun teldist ákvörðun um rétt eða skyldu, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og samkvæmt 1. málsl. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga giltu lögin ekki um aðgang að upplýsingum samkvæmt stjórnsýslulögum. Kærunni var því vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál

    03. des. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1160/2023. Úrskurður frá 16. nóvember 2023

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál tók að nýju upp mál nefndarinnar sem lyktaði með úrskurðum nr. 935/2020, 1009/2021 og 1020/2021. Í málunum komst nefndin að þeirri niðurstöðu að ríkisskattstjóra væri óheimilt að afhenda upplýsingar um hlutafjáreign úr gögnum sem tengjast skráningu raunverulegra eigenda, sbr. lög nr. 82/2019. Kærandi í framangreindum þremur málum vísaði til þess að upplýsingar um hlutafjáreign fólks væru ekki viðkvæmar og að hann teldi túlkun nefndarinnar á 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, vera ranga. Úrskurðarnefndin vísaði til þess að í nóvember 2022 hefði Evrópudómstóllinn komist að þeirri niðurstöðu að 30. gr.…

    03. des. 2023Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1159/2023. Úrskurður frá 8. nóvember 2023

    Deilt var um rétt kæranda, sem er blaðamaður, til aðgangs að upplýsingum um tollskrárnúmer farms og eðli farmsins um borð í tilteknu flugi flugfélagsins Ukraine Air Alliance, sem lenti á Keflavíkurflugvelli í lok júlí 2023. Synjun Skattsins byggðist á því að upplýsingarnar væru undirorpnar sérstakri þagnarskyldu, sbr. 188. gr. tollalaga, nr. 88/2005, og því væri Skattinum óheimilt að afhenda kæranda gögn sem innihaldi upplýsingarnar. Úrskurðarnefndin rakti að nefndin hefði slegið því föstu að ákvæðið væri sérstakt þagnarskylduákvæði að því er varðaði upplýsingar um viðskipti einstakra manna og fyrirtækja. Nefndin taldi að þau gögn sem óskað væri aðgangs að innihéldu slíkar upplýsingar. Því var ákvörðun Skattsins staðfest.

    • First
    • Prev
    • 14
    • 15
    • 16
    • 17
    • 18
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband