Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Umhverfi og náttúruvernd
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 601–650 af 1385
    Raða eftir:
    09. jún. 2022Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Byggingariðnaðurinn setur sér markmið um að draga úr losun um 43% fyrir 2030

    Vegvísir um vistvænni mannvirkjagerð með markvissum aðgerðum gefinn út.

    09. jún. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Opnað á umsóknir um styrki til verkefna sem felast í hreinsun á strandlengju Íslands

    Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum lögaðila, s.s. félagasamtaka eða áhugamannafélaga, um styrki til verkefna sem felast í hreinsun strandlengju Íslands.

    07. jún. 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Orka, Auðlindir

    Virkja þarf hugvit, þekkingu og nýsköpun til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi

    Þrátt fyrir að hafa verið frumkvöðlar í nýtingu umhverfisvænna orkugjafa, svo sem vatnsorku og jarðhita, og í dag leiðtogar á heimsvísu þegar kemur að endurnýjanlegri orkuframleiðslu og sérþekkingu á því sviði, þarf íslenska þjóðin að taka höndum saman til að ná settum markmiðum.

    03. jún. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra kallar eftir afnámi niðurgreiðslna á jarðefnaeldsneyti

    Baráttan gegn loftslagsbreytingum og hrein orkuskipti eru á meðal brýnustu verkefna mannkyns í umhverfismálum. Þar er mikilvægt að hætta niðurgreiðslum á jarðefnaeldsneyti, en fjárfesta þess í stað í hreinni og endurnýjanlegri orku.

    03. jún. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Um 28 milljarðar í skattaívilnanir vegna vistvænna bíla

    27,5 milljarðar hafa verið veittir í skattaívilnanir vegna vistvænna bíla á árunum 2012-2022. Fyrir vikið hefur mikill árangur náðst í orkuskiptum fólksbílaflotans og er Ísland komið meðal fremstu þjóða á heimsvísu í rafbílavæðingu.

    30. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra opnar starfstöðvar í Mývatnssveit

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, opnaði í dag formlega starfsstöð Vatnajökulsþjóðgarðs, Umhverfisstofnunar, Landgræðslunnar og Náttúrurannsóknastöðvarinnar við Mývatn (Ramý) á Skútustöðum í Mývatnssveit.

    30. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Friðlýsingar, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra friðlýsir hraunhella í Þeistareykjahrauni

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í dag friðlýsingu hraunhella í Þeistareykjahrauni.

    27. maí 2022Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Loftslagsmál, Nýsköpun, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Hugvitið nýtt til að draga úr kolefnislosun byggingariðnaðar

    Askur - mannvirkjarannsóknarsjóður veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum áskorunum mannvirkjagerðar. Á Nýsköpunarvikunni sem fór fram nýlega kynntur nokkrir styrkhafar Asksins nýsköpunarverkefni sín. Slík verkefni eru í lykilhlutverki þegar kemur að vistvænni mannvirkjagerð, auknum gæðum bygginga og heilnæmi.

    16. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkir til doktorsrannsókna á samspili landnýtingar og loftslags auglýstir

    Auglýst er eftir umsóknum um styrki í Doktorsnemasjóð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Styrkurinn verður veittur til rannsókna á samspili landnýtingar og loftlags.

    13. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Stuðningur við samstarfsverkefni Norðanáttar – Hringrás nýsköpunar á Norðurlandi

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra, undirritaði í dag samstarfsyfirlýsingu um verkefni sem styður við nýsköpun með áherslu á loftslagsmál og hringrásarhagkerfið í tengslum við sóknaráætlanir sveitarfélaga.

    13. maí 2022Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Heimsmarkmiðin, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Land er lykillinn í baráttunni við loftslagsbreytingar

    Ísland tekur þátt í fimmtánda aðildarríkjaþingi Samnings Saneinuðu þjóðanna um varnir gegn eyðimerkurmyndun sem haldið er 9.-20. maí í Abidjan á Fílabeinsströndinni.

    12. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra skipar starfshóp um stöðu og áskoranir þjóðgarða og friðlýstra svæða

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að vinna skýrslu um stöðu og áskoranir í þjóðgörðum og friðlýstum svæðum.

    11. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Umhverfi og náttúruvernd

    Akureyri styrkt sem höfuðstaður norðurslóða

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að hækka árleg fjárframlög ráðuneytisins til CAFF og PAME um 50%. Um er að ræða skrifstofur Norðurskautsráðsins sem hafa aðsetur á Akureyri. Ákvörðun ráðherra mun styrkja Akureyri sem höfuðstað norðurslóða og stuðla að því að Ísland verði áfram leiðandi afl í Norðurskautsráðinu.

    04. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra undirritar samstarfstarfsyfirlýsingu við útivistarsamtök

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og útivistarsamtök hafa gert með sér endurnýjað samstarf um halda úti samstarfsvettvangi í því skyni að efla lýðræðislega umræðu um náttúru- og umhverfisvernd. Samstarfsyfirlýsing ráðuneytisins og frjálsra félagasamtaka var upphaflega gerð árið 2001 og undirritaði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, uppfærða yfirlýsingu fyrir hönd ráðuneytisins.

    04. maí 2022Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Atvinnuvegir

    Styrkir til aðlögunar að lífrænum framleiðsluháttum

    Matvælaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í landbúnaði.

    03. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Norrænt samstarf, Umhverfi og náttúruvernd

    Norrænar lausnir mikilvægar fyrir þróun loftslagsmála

    Umhverfis- og loftslagsráðherrar Norðurlanda samþykktu á fundi sínum í Osló í dag tillögu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar um að búa til markvissan farveg fyrir að deila sín á milli reynslu og þekkingu á sviði umhverfismála. Ráðherrarnir ræddu einnig sameiginlegar áherslur í loftslagsmálum, alþjóðlegar samningaviðræður um líffræðilega fjölbreytni, orkuskipti í siglingum og væntanlegar viðræður vegna nýs alþjóðlegs samnings um plastmengun.

    02. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    5% samdráttur í losun á beinni ábyrgð Íslands milli 2019-2020

    Losun gróðurhúsalofttegunda sem er á beinni ábyrgð Íslands dróst saman um 5% milli áranna 2019-2020 og var 13% minni en árið 2005, sem er viðmiðunarárið fyrir loftslagsskuldbindingar Íslands. Mestur var samdrátturinn í losun frá vegasamgöngum, en aukning var í losun frá urðun úrgangs og jarðvarmavirkjunum.

    02. maí 2022Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Heimsmarkmiðin, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Sameining Landgræðslu og Skógræktar í forathugun

    Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur látið hefja forathugun á sameiningu tveggja lykilstofnana í loftslagsmálum, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar.

    02. maí 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Fyrirtæki ræða grænar lausnir á loftslagsmóti

    Loftslagsmót, vettvangur fyrir fyrirtæki, stofnanir og aðra aðila í nýsköpun, fer fram þann 4. maí næstkomandi á Grand Hótel.

    29. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Formlegt aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs flutt til Hafnar í Hornafirði

    Formlegt aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs verður flutt til Hafnar í Hornafirði næsta haust. Frá þessu greindi Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ákvörðun um flutning aðseturs á landsbyggðina var tekin var í samráði við stjórn þjóðgarðsins og verður kynnt á næstunni á Alþingi.

    25. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Viðurkenningar veittar á Degi umhverfisins

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, veitti BYKO í dag Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, fyrir framúrskarandi starf að umhverfismálum á síðasta ári. Við sama tækifæri voru nemendur í Sæmundarskóla útnefndir Varðliðar umhverfisins.

    11. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Orka, Umhverfi og náttúruvernd

    Yfir hundrað milljónir í styrki til fjölbreyttra umhverfisverkefna

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur úthlutað um 111 milljónum króna til umhverfisverkefna og reksturs félagasamtaka, sem starfa að umhverfismálum, á grundvelli umsókna. Ráðuneytið hefur veitt frjálsum félagasamtökum sem starfa að umhverfismálum rekstrarstyrki ásamt verkefna- og ferðastyrkjum frá árinu 2000, en til stendur að endurskoða úthlutunarreglur vegna styrkjanna.

    09. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Orka, Auðlindir

    Skýrsla starfshóps um orkumál á Vestfjörðum

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur birt skýrslu starfshóps um stöðu orkumála á Vestfjörðum. Skýrslan hefur verið kynnt fyrir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og á málstofu um orkumál á Vestfjörðum sem haldin var á Ísafirði 6. apríl af Vestfjarðastofu fyrir hönd Fjórðungssambands Vestfjarða.

    08. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Styrkjum úthlutað úr Loftslagssjóði í þriðja sinn

    Loftslagssjóður hefur úthlutað 88 milljónum króna til 12 verkefna. Alls hlutu 6 nýsköpunarverkefni og 6 kynningar- og fræðsluverkefni styrk að þessu sinni, en þetta er í þriðja sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

    06. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Orka, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra kynntar tillögur um orkumál á Vestfjörðum

    Mörg áhersluverkefni hafa verið sett af stað í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu til að stuðla að bættu orkuöryggi til lengri og skemmri tíma. Þetta kom fram í ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á málþingi um orkumál á Vestfjörðum.

    06. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra staðfestir fyrstu íslensku vatnaáætlunina

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, hefur staðfest fyrstu íslensku vatnaáætlunina, vatnaáætlun Íslands 2022-2027, ásamt meðfylgjandi vöktunaráætlun og aðgerðaáætlun. Ná áætlanir þessar yfir allt grunnvatn og yfirborðsvatn hér á landi.

    05. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Orka, Umhverfi og náttúruvernd

    Brýnt að auka bindingu kolefnis

    Hægt er að ná umtalsverðum samdrætti í losun koltvísýrings með núverandi tækni og leggja þarf sérstaka áherslu á rafvæðingu samgangna á landi, notkun líf-, rafeldsneytis í þungaflutningum á sjó og í lofti, sem og föngun og förgun koltvísýrings.

    04. apr. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðasamningar, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Samstarf leiðin til að tryggja líffræðilegan fjölbreytileika hafsins

    Gott samstarf Norður-Atlantshafsríkja er grunnur þess að tryggja megi líffræðilegan fjölbreytileika hafsins sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í ávarpi sínu á fundi nefndar OSPAR-samningsins um líffræðilega fjölbreytni (BDC).

    01. apr. 2022Auðlindir, Umhverfi og náttúruvernd, Landbúnaður, Landgræðsla og skógrækt, Loftslagsmál, Atvinnuvegir, Atvinnuvegaráðuneytið

    Tillögur að landsáætlun í skógrækt og landgræðsluáætlun samræmdar í matvælaráðuneytinu

    Ráðherra gefur eigi sjaldnar en á fimm ára fresti út landgræðsluáætlun og landsáætlun í skógrækt til tíu ára í senn. Í áætlununum tveimur skal kveðið á um framtíðarsýn og stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt með hliðsjón af markmiðum laga um skóga og skógrækt og laga um landgræðslu.

    23. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Nær 3 milljörðum króna veitt til innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, gerði í dag grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingar innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum. Gert er ráð fyrir um 2,8 milljarða króna framlagi til næstu þriggja ára.

    23. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Ferðaþjónusta, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra kynnir úthlutun ársins úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða – streymi

    Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða og náttúruverndar á ferðamannastöðum í dag, miðvikudaginn 23. mars klukkan 14.30.

    22. mar. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Drög að frumvarpi um verulega fjölgun rafmagnsbíla sem fá VSK-ívilnun birt í samráðsgátt

    Drög að frumvarpi um verulega fjölgun rafmagnsbíla sem fá VSK-ívilnun birt í samráðsgátt Lagt er til að fjölga rafmagnsbílum sem geta fengið ívilnun í formi niðurfellingar VSK úr 15.000 í 20.000 með frumvarpi sem nú hefur verið lagt fram í samráðsgátt stjórnvalda. Ívilnanir hafa nú verið nýttar fyrir um 12.300 bíla og útlit fyrir að fjöldatakmörkun náist að óbreyttu síðar á árinu.

    17. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Auðlindir

    Einföldun á regluverki í þágu smávirkjana

    Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skrifað undir reglugerð ​sem ætlað er að bæta rekstrarumhverfi smávirkjana. Reglugerðin er hluti af tillögum starfshóps sem ráðherra orkumála skipaði árið 2020 með það að markmiði að bæta starfsumhverfi smávirkjana, með sérstakri áherslu á gjaldtöku vegna tenginga þeirra við dreifikerfi raforku.

    15. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Orka, Auðlindir

    900 milljónir í styrki til orkuskipta

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að auglýstir verðir styrkir til orkuskipta að upphæð 900 milljónir kr. af þeim fjárveitingum sem veittar eru til loftslagsmála í ár. Um er að ræða eina hæstu upphæð sem sjóðurinn hefur úthlutað um árabil.

    14. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Auðlindir

    Umsækjendur um embætti forstöðumanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála

    Átta umsækjendur sóttu um embætti forstöðumanns úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar frá miðjum febrúar.

    11. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Alþjóðamál, Loftslagsmál, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Þurfum að efla vernd lífríkis, hafs og loftslags

    Margt hefur áunnist á hálfri öld í umhverfisvernd í heiminum, en nauðsynlegt er að efla aðgerðir til muna til að mæta áskorunum, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í ávarpi á viðburði Sameinuðu þjóðanna í Naíróbí í Kenía.

    08. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Orka, Auðlindir

    Ákvarðanir um orkuframleiðslu taki mið af loftslagsmarkmiðum Íslands

    Loftslagsmarkmið Íslands þurfa að móta í ríkari mæli ákvarðanir um orkuframleiðslu og orkuflutning hér á landi en hvoru tveggja er grundvöllur fyrir orkuskipti í samfélaginu og frekari vöxt atvinnuvega. Orkuöryggi kallar á aukna raforkuframleiðslu og öflugra flutnings- og dreifikerfi sem aftur kallar á heildrænt skipulag orkukerfisins og samþættingu verkferla.

    08. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Orka, Auðlindir

    Kynning á skýrslu um stöðu og áskoranir í orkumálum - beint streymi

    Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir í dag niðurstöðu skýrslu starfshóp sem fékk það verkefni að vinna úttekt á stöðu og áskorunum í orkumálunum með vísan til markmiða og áherslna stjórnvalda í loftslagsmálum.

    04. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Náttúruvernd, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðist í aðgerðir til að koma í veg fyrir olíumengun frá El Grillo

    Ráðast á í tvær beinar aðgerðir á næstunni til að koma í veg fyrir olíumengun frá flaki flutningaskipsins El Grillo og verða þær fjármagnaðar af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnti aðgerðirnar í ríkisstjórn í morgun.

    03. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Söguleg samþykkt um alþjóðlegan plastsáttmála

    Ályktun um að hefja viðræður um gerð lagalega bindandi alþjóðlegs sáttmála um plast og plastmengun var samþykkt á 5. umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í Naíróbí, sem lauk í gær, 2. mars.

    02. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd

    Ráðherra heimsækir stofnanir

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur undanfarna daga heimsótt nokkrar stofnanir umhverfis- og auðlindaráðuneytisins.

    01. mar. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Mikilvægt mat á stöðu þekkingar á áhrifum loftslagsbreytinga

    Efni sjöttu skýrslu milliríkjanefndar S.þ. um loftslagsbreytingar (IPCC) á skýrt erindi við Ísland. Þetta kom fram í kynningu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, skýrslunni á ríkisstjórnarfundi í morgun.

    28. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Þarf ákveðin skref nú í baráttunni gegn plastmengun

    Heimsbyggðin þarf að taka ákveðin skref í baráttunni gegn plastmengun í höfunum og hrinda af stað viðræðum um gerð alþjóðasamnings í því skyni, sagði Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra í ávarpi sínu á 5. Umhverfisþingi Sameinuðu þjóðanna í Naíróbí í Kenía.

    25. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Orka, Auðlindir

    Drög að frumvarpi um niðurgreiðslur vegna umhverfisvænnar orkuöflunar í samráðsgátt

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

    22. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Loftslagsmál, Umhverfi og náttúruvernd

    Samið við Skaftárhrepp um tilraunaverkefni um snjallar úrgangslausnir

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið og Skaftárhreppur hafa gert með sér samning um tilraunaverkefni um snjallar úrgangslausnir.

    22. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Náttúruvernd, Menningarmál

    Ráðherra undirritar samning um varðveislu minja frá Kvískerjum

    Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, undirritaði í gær samning við Sveitarfélagið Hornafjörð um skráningu, flokkun og varðveislu minja frá Kvískerjum.

    18. feb. 2022Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Efnahagsmál og opinber fjármál, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál

    Fyrningarálag vegna grænna eigna

    Með nýrri reglugerð, sem nú er í samráðsgátt, er lagt til að nýta skattalega hvata til þess að ná markmiðum í umhverfismálum, svo sem að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Reglugerðin felur í sér fyrningarálag á svokallaðar grænar eignir, t.d. þær sem teljast til vistvænna samgangna eða eignir sem tengjast framleiðslu á endurnýjanlegri orku.

    18. feb. 2022Húsnæðis- og mannvirkjamál, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Kolefnislosun frá íslenskum byggingum metin í fyrsta sinn

    Mat á kolefnislosun frá íslenskum byggingariðnaði er efni nýrrar skýrslu, sem er liður í aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Skýrslan er liður í aðgerð C3, loftslagsáhrifum byggingaiðnaðarins og er fyrsti hluti að Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð.

    17. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Almannaöryggi

    Drög að reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða í samráðsgátt

    Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að nýrri reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim. Nýja reglugerðin kemur í stað reglugerðar um sama efni frá árinu 2002.

    16. feb. 2022Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Umhverfi og náttúruvernd, Loftslagsmál, Auðlindir

    Drög að frumvarpi um bann við olíuleit og olíuvinnslu til kynningar í samráðsgátt

    Umhverfis- orku-, og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi um bann við olíuleit og vinnslu í efnahagslögsögu Íslands. Frumvarpinu er ætlað að framfylgja þeirri stefnu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar​að engin leyfi verði gefin út til olíuleitar í efnahagslögsögu Íslands.

    • First
    • Prev
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • 15
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband