Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 1804
    Raða eftir:
    26. mar. 2024Menningarmál, Menntamál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Fyrsta málstefnan um íslenskt táknmál samþykkt: Jákvætt viðhorf er kjarninn!

    „Það er á okkar ábyrgð að tryggja framtíð íslensks táknmáls og það er ekki verkefni sem ég tel léttvægt. Lykilinn að framtíð táknmálsbarna er samofin því að við tryggjum íslenskt táknmál í máltöku barnanna og byggjum þeim bjart og hvetjandi umhverfi. Þar skiptir jákvæðni gífurlegu máli samkvæmt niðurstöðum starfshóps og sérfræðinga. Jákvæðni í garð íslensks táknmáls er eitthvað sem við getum öll stuðlað að og með því stutt við jafnari tækifæri fyrir öll þau sem reiða sig á íslenskt táknmál til tjáningar og samskipta,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    23. mar. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Bókaþjóð fær nýja bókmenntastefnu

    Upp, upp mín sál og allt mitt geð, upp mitt hjarta og rómur með, hugur og tunga hjálpi til, herrans pínu ég minnast vil. Páskahátíðin er hafin þar sem við njótum samvista með fjölskyldu og vinum. Passíusálmarnir hafa fylgt þjóðinni í nærri 365 ár og eru meistaraverk bæði frá listrænu og trúarlegu sjónarmiði og ein af mörgum birtingarmyndum þess ríka bókmenntaarfs sem Ísland býr að.

    22. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sjö mál samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag

    Það er kröftug vika að baki í menningar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem Alþingi samþykkti fyrstu málstefnuna í íslensku táknmáli og lagabreytingar á kvikmyndalögum s.l miðvikudag og sjö mál voru samþykkt á ríkisstjórnarfundi í dag.

    22. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Síldarævintýri og fjárfestahátíð á Siglufirði

    Tilgangur fjárfestahátíðarinnar var að auka fjárfestingatækifæri á landsbyggðinni og tengja frumkvöðla við fjárfesta og aðra lykilaðila í stuðningsumhverfi nýsköpunar á Íslandi. Ráðherra kom inn á nýsköpunarkraft og aðlögunarhæfni Siglfirðinga í ávarpi sínu og hvernig þeim hefði tekist með miklum glæsibrag að snúa vörn í sókn eftir að síldin hvarf.

    21. mar. 2024Menningarmál, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Breyting á kvikmyndalögum samþykkt: Sjónvarpsþáttaframleiðsla gerð samkeppnishæfari

    „Þetta er fyrsti styrkur sinnar tegundar í íslenskri kvikmyndagerð og talar beint inn í kvikmyndagerð sem viðskiptagrein og listgrein. Með þessum nýja styrkjaflokki er mögulegt að fjármagna síðustu 15-20 % í framleiðslu á stórum leiknum sjónvarpsþáttum og fá hluta styrksins aftur inn til Kvikmyndasjóðs, skili verkefnið hagnaði samkvæmt settum viðmiðum styrksins,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Nái sjónvarpsþáttaröð ekki skilgreindu hagnaðarmarki virkjast krafa um endurheimt ekki og styrkurinn er þá án skuldbindinga um endurheimt.

    20. mar. 2024Innviðaráðuneytið, Fjarskipti, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kallað eftir áformum um lagningu ljósleiðara

    Fjarskiptastofa kallar eftir áformum fjarskiptafyrirtækja og opinberra aðila um uppbyggingu ljósleiðara-aðgangsneta á þéttbýlisstöðum og í byggðakjörnum fyrir árslok 2026.

    19. mar. 2024Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, Úrskurðir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    3/2022 A gegn Háskóla Íslands

    mars 2024 / Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema 3/2022 A gegn Háskóla Íslands Ár 2024, 4. janúar, lauk áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, þau Elvar Jónsson lögmaður og formaður nefndarinnar, Eva Halldórsdóttir lögmaður og Pétur Marteinn Urbancic Tómasson lögfræðingur málinu nr

    19. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Sviðslistaráð útdeildi í gær sjö viðbótarstyrkjum til óperuverkefna

    „Ég fyllist tilhlökkun yfir komandi tónlistarári við að sjá hversu mikill kraftur og hugsanafrelsi er í þeim óperuverkefnum sem hljóta styrk hér í dag. Fjölbreytnin er ákaflega ánægjuleg og það sannast enn á ný að á Íslandi er ekki vöntun á hugmyndum eða hæfileikum. Það þarf kjark, vinnusemi og ástríðu til að fylgja eftir sjálfstæðum verkefnum og koma þeim til lífs. Ég vona að sem flestir njóti afraksturs þeirra vinnu sem hér er að blómstra.“

    18. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menntamál, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Stækkaðu framtíðina - Fólk utan höfuðborgarsvæðisins hvatt til að taka þátt

    Yfir 600 sjálfboðaliðar hafa skráð sig til leiks í Stækkaðu framtíðina verkefnið sem hefur það að markmiði að víkka sjóndeildarhring ungmenna á Íslandi. Markmiðið er að a.m.k. 1000 sjálfboðaliðar taki þátt í verkefninu og eru karlar, kvár og öll utan höfuðborgarsvæðisins sérstaklega hvött til þess að taka þátt í að stækka framtíðina.

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Amanda Riffo myndlistarmaður ársins

    Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í sjöunda skipti í gærkvöldi við hátíðlega athöfn í Iðnó. Myndlistarráð stendur að baki verðlaunanna sem hafa það að meginmarkmiði að vekja athygli á því sem vel var gert á sviði myndlistar á liðnu ári.

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Ábyrgðarmenn námslána felldir brott

    Frumvarp um breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpinu er ætlað að bregðast við annmörkum núverandi laga og byggir á skýrslu háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra þar sem unnið var úr athugasemdum sem borist höfðu um Menntasjóðinn. Meðal þess sem lagt er til í frumvarpinu er að ábyrgðarmannakerfi námslána verði fellt úr gildi að fullu og að skilyrði fyrir námsstyrk verði rýmkuð.

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Máltækniáætlun kynnt: Nýjasta tækni á íslensku, takk!

    „Þetta er einmitt markmið næstu máltækniáætlunar: Að tryggja hagnýtingu þeirra máltækniinnviða sem hafa verið smíðaðir og styðja við fyrirtæki í því verkefni að þróa tæknilausnir sem skilja og tala íslensku. Við erum að tryggja það að íslenskan verði ekki skilin eftir í gífurlega hraðri tækniþróun heimsins. Við viljum tryggja það að þegar ný tæknilausn kemur á markað sem gjörbyltir innri starfsemi fyrirtækja, og getur sparað starfsfólki tíma og vinnu, þá sé sú tækni á íslensku. Íslendingar eiga að geta notað nýjustu tækni á íslensku, geti nýtt sér þjónustu fyrirtækja á íslensku og talað við tæknina á íslensku.“

    15. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Drög að frumvarpi um breytingar á listamannalaunum í samráð

    Breytingar í frumvarpinu fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Starfslaunamánuðum verður fjölgað úr 1.600 í 2.850 á tímabilinu og þremur nýjum sjóðum bætt við kerfið; Launasjóði kvikmyndahöfunda,Vexti, sjóði 35 ára og yngri og Vegsemd sjóði listamanna 67 ára og eldri.

    14. mar. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tónlistarauðlegð Íslands

    Ísland státar af öflugu tónlistarlífi sem eftir er tekið á erlendri grundu. Slík þróun gerist ekki á einni nóttu heldur liggur þar að baki afrakstur mikillar vinnu í gegnum áratugina. Það er til að mynda áhugavert að kynna sér sögu Tónlistarfélags Reykjavíkur sem stofnað var árið 1932.

    13. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Heilbrigðismál, Menntamál

    Samstarf háskóla eflir hjúkrunarfræðinám

    Meðal verkefna sem fengu úthlutun úr Samstarfi háskóla á dögunum er samstarfverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands sem hefur það að markmiði að bæta nýtingu námsplássa í hjúkrunarfræði og minnka brottfall úr starfi að námi loknu. Þannig verður greint hvað spáir fyrir um styrk og áhuga í námi og starfi sem og aðferðir við val á nemendum í hjúkrunarfræði og möguleikar á samræmdri inntöku skólanna skoðaðir.

    12. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Frumvarp um fjölmiðla samþykkt - mynddeiliveitum skylt að tryggja öryggi barna

    Í lögunum er að finna það nýmæli að mynddeiliveitum (e. video sharing platforms) verður skylt að tryggja vernd barna með tæknilegum úrræðum og gera notendum kleift að tilkynna efni sem hvetur t.d. til ofbeldis eða hryðjuverka. Auk þess verði gerðar kröfur um skýrar merkingar auglýsingaefnis á mynddeiliveitum.

    11. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Samvinnufélög á forsendum samfélaga: Drög að breytingu á lögum um samvinnufélög í samráðsgátt

    Viðamesta breytingin lýtur að því að einfalda stofnun samvinnufélaga, þannig að lágmarksfjölda stofnenda samvinnufélaga fari úr 15 í 3.

    11. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Úkraínskir þingmenn heimsóttu menningar- og viðskiptaráðuneytið

    Staða viðskiptamála og aukin tvíhliða samskipti landanna, meðal annars milli þjóðþinga ríkjanna voru meðal þess sem rætt var um. Ráðherra undirstrikaði einnig skýran vilja Íslendinga til þess að halda áfram að styðja við Úkraínu í ljósi innrásar Rússa í landið og mikilvægi þess að standa vörð um lýðræði og mannréttindi á krefjandi tímum í alþjóðamálum.

    11. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Opinn kynningarfundur um áætlun stjórnvalda um máltækni 14. mars

    Skýrsla stýrihóps um gerð máltækniáætlunar stjórnvalda, Íslenskan okkar, alls staðar: Áætlun um máltækni, verður kynnt á opnum kynningarfundi á Parliament hóteli við Austurvöll næstkomandi fimmtudag, 14. mars, kl. 12:30.

    11. mar. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fatlað fólk, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tillögur að auknum náms- og starfstækifærum fyrir fatlað fólk

    Starfshópur um aukin náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk hefur skilað tillögum sínum til ráðherra. Hópnum var ætlað að greina núverandi starfs- og menntunartækifæri fatlaðs fólks með tilliti til þess hvað þurfi að bæta, auk þess að leggja fram tillögur að aðgerðum.

    09. mar. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Stöðugleikakjarasamningar í þágu þjóðar

    Hagsæld þjóða byggist á samspili fjölmargra þátta sem huga þarf að og stilla saman. Þar spila kjarasamningar meðal annars veigamikið hlutverk. Íslenska hagkerfið er þróttmikið og sagan kennir okkur að það á til að bregðast hratt við þegar áföll ríða yfir.

    08. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Kröftug ritmenning og fjölbreytt útgáfustarfsemi: drög bókmenntastefnu í opið samráð

    Kynntar eru til sögunnar nýjungar sem mikilvægt er að fá viðbrögð við, frá hagsmunaaðilum og áhugafólki um bókmenntir.

    08. mar. 2024Atvinnuvegaráðuneytið, Auðlindir, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Iðnaður, Atvinnuvegir, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Áslaug Arna ávarpaði Iðnþing

    Snjöll framtíð í orkumálum, nauðsyn þess að umbylta úreltum kerfum og nýting gervigreindar til að bæta þjónustu hins opinbera. Þetta er meðal þess sem kom fram í ávarpi Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins í gær.

    06. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Lagt til að auglýsingasala RÚV verði stafræn

    Leið þrjú, svokölluð stafræn leið, gerir ráð fyrir að hefðbundin sala og markaðssetning á auglýsingum hjá Ríkisútvarpinu verði óheimil en auglýsingahólf séu þess í stað seld á vefnum.

    06. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aðgerðir í þágu öflugri fjölmiðla: Fjölmiðlastefna til 2030 birt í samráðsgátt

    „Í fjölmiðlastefnunni birtast skýr áform stjórnvalda um að efla rekstur innlendra fjölmiðla og bæta starfsumhverfi fjölmiðlafólks. Fjölmiðlastefnan endurspeglar mikilvægi faglegra fjölmiðla fyrir íslenskt samfélag og lýðræði. Það er tímabært að málefni fjölmiðla í víðu samhengi verði sett á dagskrá í íslensku samfélagi og að stjórnvöld leggi sitt af mörkum til styðja við starfsemi þeirra. Ég er þess fullviss að með meginmarkmið stefnunnar að leiðarljósi náum við að efla öfluga, íslenska fjölmiðlun til framtíðar,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.

    05. mar. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Vor á Vestfjörðum

    Það var fallegt að fljúga inn til lendingar á Ísafirði í gær þar sem ég varði deginum í að funda með Vestfirðingum um hin ýmsu mál. Það er engum blöðum um það að fletta að mikil breyting hefur orðið til batnaðar á Vestfjörðum á undanförnum árum;…

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Aukið eftirlit með heimagistingu og rekstrarleyfisskyldri gististarfsemi

    „Það er mikilvægt að halda vel utan um heimagistingu og er þessi samningur liður í þeirri vegferð. Ég vænti mikils af samstarfinu við Sýslumannsembættið,“ segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Ferðamálaráðherra býður til kynningarfundar á Suðurnesjum á morgun

    Á morgun, þriðjudag, er næst síðasti staðfundurinn kl. 13:00 í Hljómahöllinni Reykjanesbæ. Ferðaþjónustuaðilar á Suðurnesjum og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar eru boðin hjartanlega velkomin á fundinn en skráningu má finna hér.

    04. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Háskólar, Menntamál

    Fólki með þroskahömlun auðveldað að stunda háskólanám

    Verkefni sem lúta að alþjóðlegri sókn og iðkun á þriðja hlutverki háskóla voru meðal þeirra verkefna sem fengu úthlutun úr Samstarfi háskóla á dögunum. Tæplega 1,6 milljarði króna var úthlutað til 35 fjölbreyttra verkefna sem skiptast í sex áhersluflokka sem allir hafa það að markmiði að auka gæði háskólanáms og samkeppnishæfni íslenskra háskóla.

    01. mar. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Frumvarp um opinber skjalasöfn í samráðsgátt

    Þar sem nær öll skjöl í nútímastjórnsýslu verða til á rafrænu formi er með þessu í fyrsta sinn kveðið á um að rafræn skil séu meginregla. Hér er því um að ræða grænt og jákvætt skref til framtíðar sem mun einnig leiða af sér sparnað.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Átt þú klukkustund til að stækka framtíðina?

    Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynntu í dag verkefnið Stækkaðu framtíðina. Verkefnið hefur það að markmiði að víkka sjóndeildarhring nemenda og gefa öllum ungmennum á Íslandi tækifæri til að eiga fjölbreyttar fyrirmyndir.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Guðrún Gunnarsdóttir skipuð skrifstofustjóri

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Guðrúnu Gunnarsdóttur í embætti skrifstofustjóra skrifstofu fjármála og gæða í menningar- og viðskiptaráðuneytinu frá og með 1. mars nk.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Auglýst er eftir umsóknum úr Barnamenningarsjóði

    Hlutverk sjóðsins er að styðja fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna í menningarlífi.

    29. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Bein útsending: Fjölmiðlar á tímum stafrænnar byltingar

    Sýnt verður frá málþinginu Fjölmiðlar á tímum stafrænnar byltingar í beinni útsendingu. Málþingið er öllum opið og hefst kl. 13 í dag í Grósku.

    28. feb. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Einn af eldhugum hagfræðinnar: Joseph Stiglitz

    28 febrúar 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Einn af eldhugum hagfræðinnar: Joseph Stiglitz Bandaríski hagfræðingurinn Joseph Stiglitz er einn virtasti hagfræðingur samtímans. Hann er þekktur fyrir framlag sitt til hagfræðinnar, einkum á sviði upplýsingahagfræði, opinberrar stefnumótunar og þróunarhagfræði. Stiglitz hlaut doktorsgráðu í hagfræði frá Massachusetts Institute of Technology (MIT)

    27. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Nýtt nám í blaðamennsku við Háskóla Íslands

    Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, undirrituðu í dag samning um samstarf sem miðar að því að efla menntun blaða- og fréttamanna með nýju hagnýtu BA-námi í blaðamennsku við Stjórnmálafræðideild HÍ. Ráðuneytið mun veita námsleiðinni stuðning sem nemur 45 milljónum króna á næstu þremur árum.

    26. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Neytendamál: Frumvarp til markaðssetningarlaga í samráðsgátt

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur birt í samráðsgátt drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga. Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005. Samhliða er lagt til að endurskoða lög um Neytendastofu nr. 62/2005 og lög um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd nr. 20/2020. Tillaga frumvarpsins er að ný markaðssetningarlög leysi framangreind lög af hólmi.

    26. feb. 2024Forsætisráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málþing með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz

    Forsætisráðuneytið og menningar- og viðskiptaráðuneytið í samvinnu við Háskóla Íslands standa fyrir málþingi með Nóbelsverðlaunahafanum Joseph Stiglitz. Málþingið fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, föstudaginn 1. mars kl. 12-13.30.

    24. feb. 2024Ræður og greinar, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Varnarmál í brennidepli

    24 febrúar 2024 / Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið Varnarmál í brennidepli Tvö ár eru liðin í dag frá því að við fylgdumst agndofa með því þegar Rússar hófu ólöglega innrás sína inn í frjálsa og fullvalda Úkraínu. Stríð var hafið í Evrópu. Daglegu lífi Úkraínumanna, þessarar fjölmennu Evrópuþjóðar, var á einni nóttu snúið á hvolf, með þeim afleiðingum að milljónir hafa neyðst til að rífa sig upp með rótum og flýja heimili sín vegna árása Rússlandshers

    23. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Úthlutað í fyrsta sinn úr nýjum Tónlistarsjóði

    Merkisáfangi raungerðist síðastliðinn föstudag þegar úthlutað var í fyrsta sinn úr nýjum Tónlistarsjóði.

    23. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Málþing um stöðu íslenskra fjölmiðla á tímum stafrænnar byltingar

    Hver er staða íslenskra fjölmiðla á tímum stafrænnar byltingar? Ættu Google og Meta að greiða útgefendum fjölmiðla fyrir fréttir og er hægt að verðmeta fréttir? Hver verða áhrif gervigreindar á blaðamennsku og ritstjórnir fjölmiðla?

    22. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Vel heppnuð ráðstefna um stöðu bókarinnar á Íslandi

    Á dögunum stóð menningar- og viðskiptaráðherra fyrir ráðstefnu um stöðu bókarinnar á Íslandi. Ráðstefnan var haldin í Veröld – húsi Vigdísar og var mjög vel sótt.

    22. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Háskólar, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Menntamál

    Bætt stoðþjónusta og nýting innviða með Samstarfi háskóla

    Meistaranám við fleiri en einn háskóla, sýndarveruleiki í heilbrigðisnámi og nýting bitakeðjutækni til að sannreyna erlend prófskírteini eru meðal verkefna sem nýlega fengu úthlutun úr Samstarfi háskóla og hafa bætta stoðþjónustu og betri nýtingu innviða að markmiði.

    21. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    Tobba Marinós ráðin upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins

    Þorbjörg Marinósdóttir hefur verið ráðin nýr upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur störf á næstu dögum.

    20. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðismál, Nýsköpun, Vísindi nýsköpun og rannsóknir

    Heilsuapp Norðurlandanna 2024

    Opið er fyrir umsóknir í samkeppni um Heilsuapp Norðurlandanna árið 2024.

    20. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

    List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum

    List fyrir alla auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn.

    20. feb. 2024Dómsmálaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Útlendingar, Innflytjendur, Flóttafólk

    Heildarsýn í útlendingamálum

    Ríkisstjórnin sammæltist í dag um aðgerðir í málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd, flóttafólks og innflytjenda. Á grundvelli þeirra aðgerða verður tekið utan um málaflokkinn með heildstæðum hætti með aukinni samhæfingu á milli ráðuneyta og stofnana. Markmiðið er að stuðla að betri, skilvirkari og skýrari framkvæmd innan málaflokksins, og bættri þjónustu til að renna styrkari stoðum undir stjórn útlendingamála. Með þessari heildarsýn er lögð áhersla á mannúð og virðingu og unnið gegn skautun í íslensku samfélagi. Horft er sérstaklega til framkvæmdar þessara mála á Norðurlöndum þannig að aukið samræmi sé á milli landa.

    20. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum

    Menningarsjóður Íslands og Finnlands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Umsóknarfrestur rennur út 31. mars.

    19. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Vísindi nýsköpun og rannsóknir, Nýsköpun, Landsbyggðin, Atvinnuvegir

    Lóan er komin: Opið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu - nýsköpunarstyrkjum fyrir landsbyggðina

    Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki úr Lóu. Styrkirnir eru nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina sem hafa það hlutverk að styðja við eflingu byggða og landshluta með nýskapandi verkefnum. Styrkjunum er aðeins úthlutað til verkefna utan höfuðborgarsvæðisins í þeim tilgangi að styðja við atvinnulíf og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni.

    19. feb. 2024Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Menningarmál

    Þjóðarópera í sjónmáli

    Menningar- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram frumvarp í Samráðsgátt varðandi stofnun Þjóðaróperu á Íslandi.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband