Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 551–600 af 2979
    Raða eftir:
    30. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 18/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja tilkynningu kæranda um breytingu á rekstri í heilbrigðisþjónustu. Í málinu reyndi á hvort frekari kröfur landlæknis, sem honum er heimilt að setja vegna rekstrartilkynninga, samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 41/2007 og 2. mgr. 26. gr. laga nr. 40/2007, um heilbrigðisþjónustu, fælu í sér of víðtækt framsal valds til landlæknis. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að nauðsynlegt gæti verið að veita landlækni heimild til að gera ákveðnar frekari kröfur til verndar öryggi sjúklinga og gæða heilbrigðisþjónustu. Þær yrðu þó ávallt að eiga sér stoð í ákvæðum fyrrgreindra laga og 75. gr. stjórnarskrárinnar, nr. 33/1944.…

    27. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 17/2024

    Kærð var ákvörðun embættis landlæknis um að synja umsókn kæranda um sérfræðileyfi í hjartalækningum sem undirsérgrein við lyflækningar. Kærandi í málinu hélt því fram að skilyrði væru til að staðfesta umsókn hans, enda hefði hann lokið sérfræðinámi. Embætti landlæknis taldi að skilyrði fyrir að veita kæranda sérfræðileyfi væru ekki fyrir hendi, enda væri það forsenda fyrir veitingu sérfræðileyfis, ef ekki er fyrir að fara marklýsingu fyrir námið hér á landi, að umsækjandi hafi fengið útgefið leyfi í námsríkinu sem embætti landlæknis er heimilt að staðfesta á Íslandi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði reglugerðar nr. 856/2023 né reglugerðar nr. 467/2015 til að hljóta sérfræðileyfi. Var ákvörðun embættis landlæknis af þeim sökum staðfest.

    21. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Akureyrarklíníkin formlega stofnuð

    Formleg stofnun Akureyrarklíníkurinnar, þekkingar og ráðgjafamiðstöðvar um ME sjúkdóminn, fór fram á Akureyri sl. föstudag. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir verkefnið einstakt á margan hátt: „Með klíníkinni verður unnt að bæta þjónustu á landsvísu við sjúklinga sem glíma við ME sjúkdóminn og styðja við rannsóknir og greiningu á sjúkdóminum.“ Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri (SAk) og forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN) innsigluðu stofnun Akureyrarklíníkurinnar með undirritun samstarfsyfirlýsingar við hátíðlega athöfn í Menntaskólanum á Akureyri.…

    16. ágú. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Félags- og fjölskyldumál, Líf og heilsa, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Samningur undirritaður um samþætta heimaþjónustu í Vesturbyggð

    Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Vesturbyggð hafa gert með sér samning um rekstur samþættrar heimaþjónustu í sveitarfélaginu. Samningurinn er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda; Gott að eldast, sem felur í sér heildarendurskoðun á þjónustu við eldra fólk með áherslu á að þjónusta sé veitt þegar hennar er þörf, á forsendum fólksins sjálfs og á réttu þjónustustigi.

    14. ágú. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 22/2024

    Kærð var ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðisins um að synja umsókn kæranda um færni- og heilsumat þar sem talið var að forsendur fyrir færni- og heilsumati væru ekki nægjanlegar að sinni auk þess sem heimaþjónusta væri ekki fullnýtt. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að af gögnum málsins og samskiptum við kæranda væri ljóst að gögn málsins sem færni- og heilsumatsnefndin aflaði um stöðu kæranda væru röng og ættu líkast til ekki við um kæranda. Var því ekki mótmælt af hálfu nefndarinnar. Var það mat ráðuneytisins að af þeim sökum gæti málið ekki talist rannsakað með fullnægjandi hætti. Ákvörðun færni- og heilsumatsnefndar var af þeim sökum felld úr gildi og lagt fyrir nefndina að taka umsókn kæranda fyrir að nýju.

    13. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Aukið við húsnæði heilsugæslunnar í Sunnuhlíð á Akureyri

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur heimilað Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) að taka á leigu um 250 fermetra húsnæðis í Sunnuhlíð og skapa þannig aukið rými fyrir starfsemi heilsugæslunnar sem þar er til húsa. Þar verður einnig starfsstöð Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands sem hefur verið með aðsetur í gömlu heilsugæslustöðinni við Hafnarstræti.

    13. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samkomulag um úrbætur á húsnæði Hlíðar á Akureyri

    Ríkið og Akureyrarbær hafa komist að samkomulagi um fyrirkomulag vegna nauðsynlegra framkvæmda við húsnæði hjúkrunarheimilisins Hlíðar á Akureyri. FSRE (Framkvæmdasýslan Ríkiseignir) stýrir verkefninu sem er hafið og gert ráð fyrir að verði að fullu lokið fyrir lok næsta árs. Kostnaður við framkvæmdirnar, allt að 1.250 milljónir króna, greiðist úr ríkissjóði.

    13. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Sonja Lind nýr aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ráðið Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur sem aðstoðarmann sinn. Hún hefur störf í vikunni.

    09. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ylja - Neyslurými

    Ylja, fyrsta staðbundna neyslurýmið sem byggir á hugmyndafræði skaðaminnkunar hefur verið opnað í Borgartúni í Reykjavík. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir opnun þess marka tímamót í þjónustu við fólk sem glímir við fíknisjúkdóma.

    09. ágú. 2024Rit og skýrslur, Atvinnuvegaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Líf og heilsa, Neytendamál, Umhverfi og náttúruvernd, Heilbrigðisráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis

    ágúst 2024 / Atvinnuvegaráðuneytið Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið Heilbrigðisráðuneytið Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis (íslenska) Aðgerðaáætlun gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis (enska)

    09. ágú. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið

    Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi staðfest

    Eitt af mikilvægustu verkefnum samtímans er að varðveita virkni sýklalyfja fyrir komandi kynslóðir. Til þess þarf að ráðast í víðtækar aðgerðir og setja metnaðarfull markmið í baráttunni við útbreiðslu sýklalyfjaónæmis. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra, Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfisráðherra hafa staðfest aðgerðaáætlun þessa efnis sem unnin var af þverfaglegum starfshópi heilbrigðisráðherra undir forystu Þórólfs Guðnasonar fyrrverandi sóttvarnalækni. Áætlunin felur í sér skilgreindar aðgerðir og verkefni sem ráðast þarf í, forgangsröðun þeirra og kostnaðarmat.

    19. júl. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 20/2024

    Óskað var eftir endurupptöku á úrskurði ráðuneytisins nr. 12/2024 þar sem talið var að úrskurðurinn væri haldinn efnislegum annmörkum. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að skilyrði fyrir endurupptöku væru ekki fyrir hendi enda væru atvik málsins ekki með þeim hætti sem greinir í 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Engu að síður taldi ráðuneytið að því bæri skylda til að líta til annarra heimilda sem það hefði til að endurskoða ákvörðunina. Kannaði ráðuneytið m.a. hvort skilyrði fyrir afturköllun ákvörðunar væru fyrir hendi. Niðurstaða ráðuneytisins var að svo væri ekki enda væri úrskurðurinn lögum samkvæmt. Var endurupptökubeiðni kæranda af þeim sökum hafnað.

    18. júl. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 14/2024

    Kærð var málsmeðferð setts landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Gerðar voru athugasemdir við marga þætti málsmeðferðar setts landlæknis í kærum sem stöfuðu bæði frá heilbrigðisstofnun og sjúklingi. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að hvorki yrði hæfi setts landlæknis né óháðu sérfræðinga málsins dregin í efa. Rannsókn málsins hefði verið fullnægjandi og andmælaréttur virtur. Hins vegar hefði málsmeðferðartími farið úr hófi fram og að rökstuðningur setts landlæknis í málinu hefði ekki að fullu samrýmst ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 og laga nr. 41/2007, um landlækni og lýðheilsu. Var málsmeðferð setts landlæknis staðfest að öðru leyti.…

    10. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Viðbótarmenntun sjúkraliða formlega viðurkennd með reglugerð

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur gert breytingu á reglugerð um menntun, réttindi og skyldur sjúkraliða og skilyrði til að hljóta starfsleyfi. Reglugerðarbreytingin felur í sér viðurkenningu á viðbótarmenntun sjúkraliða við Háskólann á Akureyri sem gerir þeim kleift að takast á við flóknari verkefni og takast á hendur aukna ábyrgð í störfum sínum.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar Landspítala að hefjast

    Samningur um framkvæmdir við 4.400 fermetra nýbyggingu endurhæfingardeildar Landspíta við Grensás var undirritaður í dag. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist í ágúst og ljúki á árinu 2026. Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Karl Andreassen forstjóri Ístaks undirrituðu samninginn og vottar að honum voru Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala og Guðrún Pétursdóttir formaður Hollvina Grensásdeildar.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Greining á stöðu markmiðs heilbrigðisstefnu um rétta þjónustu á réttum stað

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp til að greina hver sé staðan á því markmiði heilbrigðisstefnu að notendur heilbrigðisþjónustu fái þá þjónustu sem þeir þarfnast, á réttu þjónustustigi og að þjónustan sé samfelld. Í heilbrigðisstefnunni eru talin 13 stefnumið sem þarf að uppfylla til að ná settu marki. Hlutverk starfshópsins verður að greina hvað áunnist hefur í þessu skyni og jafnframt að gera tillögur um aðgerðir sem nauðsynlegar eru til að ná þeim árangri sem að er stefnt.

    09. júl. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    „Börn eru ekki litlir fullorðnir“ – Skýrsla um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis

    júlí 2024 / Heilbrigðisráðuneytið „Börn eru ekki litlir fullorðnir“ – Skýrsla um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis Börn eru ekki litlir fullorðnir - skýrsla starfshóps um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    „Börn eru ekki litlir fullorðnir“ – Skýrsla starfshóps um heilbrigðisþjónustu við börn sem þolendur ofbeldis

    Starfshópur sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fól að móta framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu fyrir börn sem eru þolendur ofbeldis hefur nú lokið störfum og skilað ráðherra skýrslu ásamt tillögum. Til afmörkunar efnisins voru skoðaðar tvær birtingarmyndir ofbeldis í garð barna. Annars vegar börn sem þolendur heimilisofbeldis og hins vegar sá hópur barna sem útsettur er fyrir að undirgangast limlestingar á kynfærum.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áformað að skipa stjórn Sjúkrahússins á Akureyri

    Birt hafa verið til umsagnar áform um lagabreytingu sem gerir kleift að skipa stjórn yfir Sjúkrahúsinu á Akureyri. Markmiðið er að styrkja enn frekar stjórnun sjúkrahússins og faglegan rekstur þess. Horft er til þess að sambærileg ákvörðun um skipun stjórnar yfir Landspítala árið 2022 hefur gefist vel. Því er talið skynsamlegt að stíga sama skref varðandi Sjúkrahúsið á Akureyri sem er ein af stærstu stofnunum ríkisins, hvort sem litið er til starfsmannafjölda eða fjárheimilda.

    09. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Heilbrigðisstofnun Vesturlands viðurkennd fyrir sérnámskennslu í bæklunarlækningum

    ​Mats- og hæfisnefnd um sérnám lækna hefur viðurkennt Heilbrigðisstofnun Vesturlands sem kennslustofnun til að annast sérnám lækna í bæklunarlækningum, í samvinnu við bæklunarlækningar á Landspítala. Haustið 2022 var ný og fullkominn skurðstofa fyrir liðskiptaaðgerðir tekin í notkun á Sjúkrahúsinu á Akranesi.

    08. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Áform um afnám kostnaðarþátttöku sveitarfélaga við uppbyggingu hjúkrunarheimila

    Birt hafa verið til umsagnar í samráðsgátt áform heilbrigðisráðherra um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu sem fellir brott skyldu sveitarfélaga til að greiða 15% stofnkostnaðar við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þetta er liður í því að hrinda í framkvæmd ákvörðun heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að taka upp nýtt og skilvirkara fyrirkomulag við öflun húsnæðis fyrir hjúkrunarheimili sem kynnt var í byrjun þessa árs.

    05. júl. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Skýrsla heilbrigðisráðherra um fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2025 til 2029

    júlí 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Skýrsla heilbrigðisráðherra um fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2025 til 2029 Skýrsla heilbrigðisráðherra um fimm ára aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu 2025 til 2029

    05. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Frumvörp heilbrigðisráðherra sem urðu að lögum á vorþingi

    Fimm frumvörp heilbrigðisráðherra urðu að lögum frá Alþingi á liðnu vorþingi. Í þeim felast ýmis nýmæli sem eru mikilvæg fyrir notendur og veitendur heilbrigðisþjónustu og styrkja stjórnsýslu heilbrigðismála. Þar má nefna ákvæði um umsýsluumboð vegna aðgangs að stafrænum heilbrigðisgáttum, miðlun sjúkraskrárupplýsinga milli landa í þágu meðferðar sjúklinga og ákvæði sem einfaldar umsóknarferli vegna tiltekinna vísindarannsókna. Samþykkt var ný heildarlöggjöf um sjúklingatryggingu og gerðar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu þannig að í löggjöfinni sé tekið mið af þeim breytingum sem leiða af örri þróun á sviði fjarheilbrigðisþjónustu.

    05. júl. 2024Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Heilbrigðismál, Heilbrigðisráðuneytið

    Viljayfirlýsing um uppbyggingu Sementsreits á Akranesi undirrituð

    Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirrituðu í gær ásamt Haraldi Benediktssyni, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar, viljayfirlýsingu um fyrirhugaða uppbyggingu Sementsreits á Akranesi fyrir starfsemi ríkis og sveitarfélagsins.

    03. júl. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Fatlað fólk, Stafrænt Ísland, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Áfram unnið að þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk

    Tillögur starfshóps um þróun lausna á stafrænu aðgengi fyrir fatlað fólk voru kynntar í ríkisstjórn á dögunum. Vinnan byggir á viljayfirlýsingu sem fjórir ráðherrar undirrituðu vorið 2023 og var hópnum falið að útfæra tillögur og tryggja aukið samstarf á milli aðila innan og utan stjórnkerfisins.

    03. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjórar ferðir fást nú endurgreiddar vegna heilbrigðisþjónustu innanlands

    Almennur réttur fólks til að fá greiddan ferðakostnað þurfi það að sækja sér heilbrigðisþjónustu utan heimabyggðar miðast við nú við fjórar ferðir á hverju almanaksári. Reglugerð Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra þessa efnis tók gildi 1. júlí. Í byrjun þessa árs var rétturinn aukinn úr tveimur ferðum í þrjár og nú hefur fjórða ferðin bæst við.

    01. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Fjölgun meðferðarrýma í Krýsuvík

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, ásamt fulltrúa Krýsuvíkursamtakana hafa undirritað samkomulag um fjölgun rýma og aukinn stuðning við meðferðarheimilið Krýsuvík. Samkomulagið kveður á um aukið aðgengi að þjónustunni og fjölgun meðferðarplássa um þriðjung, ásamt því að efla faglegt meðferðarstarf í Krýsuvík.

    01. júl. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Ný legudeildarbygging við Sjúkrahúsið á Akureyri

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, undirritaði í liðinni viku samning vegna hönnunar á nýrri 10.000 fermetra legudeildarbyggingu við Sjúkrahúsið á Akureyri. Undirritunin fór fram við hátíðlega athöfn á Sjúkrahúsinu á Akureyri þann 27. júní. Gert er ráð fyrir að húsnæðið verði tilbúið til notkunar í lok árs 2028.

    28. jún. 2024Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Málefni eldra fólks, Heilbrigðisráðuneytið

    Gott að eldast: Miðstöð í öldrunarfræðum komið á fót

    Nýrri Miðstöð í öldrunarfræðum hefur verið komið á fót. Henni er ætlað að efla nýsköpun og þróun þjónustu við eldra fólk, meðal annars með því að safnað verði á einum stað saman upplýsingum um stöðu eldra fólks hér á landi.

    27. jún. 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 19/2024

    Kærður var málshraði embættis landlæknis í kvörtunarmáli til ráðuneytisins. Kærandi kvartaði til embættis landlæknis þann 24. júní 2021 en þegar kæra barst ráðuneytinu beið málið enn eftir að komast í umsögn hjá óháðum sérfræðingi. Ráðuneytið gerði ekki athugasemdir við að embætti landlæknis forgangsraðaði kvörtunum enda væri byggt á málefnalegum sjónarmiðum. Kvartanir til embættisins varði iðulega atvik sem beri að taka alvarlega og því beri ávallt að beita forgangsröðun af varfærni, svo sem embætti landlæknis geri. Engu að síður var það niðurstaða ráðuneytisins að málsmeðferðartími kvörtunarmálsins samrýmdist ekki kröfum 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.

    27. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið

    Nýr fjarskiptalæknir styrkir bráðaþjónustu á landsvísu

    Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að setja á laggirnar fjarskiptalækni bráðaþjónustu. Um er að ræða faglega ráðgjöf bráðalæknis fyrir Neyðarlínu, sjúkraflutninga og aðra veitendur bráðrar heilbrigðisþjónustu á landsvísu.

    20. jún. 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Tillaga að aðgerðaáætlun - skýrsla starfshóps um krabbamein

    júní 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Tillaga að aðgerðaáætlun - skýrsla starfshóps um krabbamein Tillaga að aðgerðaáætlun - skýrsla starfshóps um krabbamein

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Tillaga að aðgerðaáætlun – skýrsla samráðshóps um krabbamein

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um nýja aðgerðaáætlun í krabbameinsmálum til ársins 2030. Samráðshópur sem ráðherra skipaði í byrjun þessa árs til að vinna drög að slíkri áætlun skilaði niðurstöðum sínum í dag. Lagt er til að aðgerðaáætlunin endurspegli þau grunngildi sem fram koma í ályktunum Alþingis um heilbrigðisstefnu og lýðheilsustefnu þar sem m.a. er lögð áhersla á rétta þjónustu á réttum stað og forvarnir á öllum æviskeiðum. Enn fremur verði tekið tillit til breytinga og nýjunga á sviði greininga, meðferðar og þjónustu og breyttra viðhorfa til krabbameina frá því að fyrsta krabbameinsáætlunin var gerð.

    20. jún. 2024Rit og skýrslur, Líf og heilsa, Heilbrigðisráðuneytið

    Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum

    júní 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum - skýrsla starfshóps

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Rúmur milljarður króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur úthlutað rúmum einum milljarði króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Þetta er hæsta úthlutun úr sjóðnum til þessa. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt. Veitt voru framlög til 73 verkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Við úthlutun lagði stjórn Framkvæmdasjóðsins áherslu á verkefni sem stuðla að bættum aðbúnaði og auknu öryggi íbúa. Þar má nefna breytingu tvíbýla í einbýli, endurbætur á einkarýmum og sameiginlegum rýmum íbúa, bætta aðstöðu til endurhæfingar og þjálfunar, greiðara aðgengi innanhúss og utan og ýmis fleiri öryggismál auk almennra viðhaldsverkefna.

    20. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum – skýrsla starfshóps

    Starfshópur heilbrigðisráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um málefni yngra fólks á hjúkrunarheimilum hefur skilað skýrslu með tillögum sínum. Hlutverk hópsins var að greina stöðu þessara mála og gera tillögur um hvernig best megi koma til móts við þarfir þeirra einstaklinga sem um ræðir. Auk fulltrúa ráðuneytanna sátu í starfshópnum fulltrúar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, Öryrkjabandalags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    13. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Börnum, öldruðum og öryrkjum tryggð greiðsluþátttaka fyrir tannlæknaþjónustu í samningi

    Nýr samningur tryggir greiðsluþátttöku tannlækninga fyrir börn, aldraða og öryrkja til næstu fimm ára. „Þessi heildarsamningur um þjónustu tannlækna er enn ein varðan á vegferð stjórnvalda til að draga úr greiðsluþátttöku fólks fyrir heilbrigðisþjónustu og stuðla þannig að jöfnu aðgengi. Samningurinn gildir til fimm ára, líkt og nýgerður samningur um þjónustu sjúkraþjálfara og samningurinn um þjónustu sérgreinalækna. Ég óska samningsaðilum og þjónustuþegum til hamingju með þessi tímamót“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra.

    13. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Netsala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra bendir á í bréfi til fjármála- og efnahagsráðherra að með netsölu áfengis sé grafið undan gildandi sölufyrirkomulagi á áfengi og grundvallarmarkmiðum stefnu stjórnvalda í lýðheilsumálum ógnað. Vísar hann m.a. til markmiðsákvæða áfengislaga og laga um verslun með áfengi og tóbak sem kveða á um að umgjörð smásölu áfengis skuli byggjast á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð.

    11. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Mótuð verði stefna um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað starfshóp sem falið er að gera tillögur um hvernig staðið skuli að einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu hér á landi og móta drög að stefnu þar að lútandi. Formaður hópsins er Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.

    07. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Uppbygging Nýs Landspítala stenst kostnaðaráætlanir - fyrsti áfangi uppbyggingarinnar fullfjármagnaður

    Stýrihópur um skipulag framkvæmda við Landspítala og annarra sérhæfðra sjúkrahúsa hefur kynnt heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra uppfærða heildaráætlun Nýs Landspítala ohf. (hér eftir nefnt NLSH). Heildaráætlun NLSH kom síðast út haustið 2022. Í nýrri heildaráætlun kemur fram að heildaráætlun NLSH standist kostnaðaráætlanir, með einungis 0,6% fráviki. Það er óveruleg hlutfallsleg breyting í ljósi heildarumfangs verkefna NLSH og í ljósi krefjandi aðstæðna á heimsmarkaði.

    05. jún. 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Til umsagnar: Drög að reglugerð um merkingar á tóbaksvörum, útlit umbúða o.fl.

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð sem felur í sér breyttar kröfur varðandi merkingar og útlit á umbúðum tóbaksvara, innihaldsefni og losun frá tóbaksvörum og kröfur um upplýsinga- og skýrslugjöf framleiðenda og innflytjenda á slíkum varningi. Umsagnarfrestur er til 24. júní næstkomandi.

    31. maí 2024Rit og skýrslur, Heilbrigðisráðuneytið

    Endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila - tillögur vinnuhóps

    maí 2024 / Heilbrigðisráðuneytið Endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila - tillögur vinnuhóps Endurskoðun á mats- og greiðslukerfi hjúkrunarheimila - tillögur vinnuhóps

    31. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Upplýsingar um kynjahlutfall í nefndum, ráðum og stjórnum heilbrigðisráðuneytisins

    Heilbrigðisráðuneytið birtir hér upplýsingar um hlutföll kynjanna í nefndum, ráðum og stjórnum sem undir það heyra, í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Samkvæmt lögunum á kynjahlutfall að vera sem jafnast og hlutur hvors kyns ekki undir 40%. Kynjahlutföll í nefndum ráðuneytisins eru í samræmi við ákvæði laganna.

    30. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Baráttan gegn sýklalyfjaónæmi meðal áherslumála á 77. þingi WHO

    Sýklalyfjaónæmi er eitt af helstu umfjöllunarefnunum á 77. þingi Alþjóðaheilbrigðis­mála­stofnunarinnar (WHO) sem nú stendur yfir í Genf. Sýklalyfjaónæmi er alþjóðlegt heilbrigðisvandamál sem ógnar heilsu manna og dýra, matvælaframleiðslu og umhverfi. Áætlað er að um 1,27 milljónir dauðsfalla á heimsvísu árið 2019 hafi verið tengd sýklalyfjaónæmi, og ef ekkert er að gert, gætu þessi dauðsföll orðið allt að 10 milljónir á ári fyrir árið 2050​​.

    22. maí 2024Úrskurðir heilbrigðisráðuneytis, Úrskurðir, Heilbrigðisráðuneytið

    Úrskurður nr. 15/2024

    Kærendur kvörtuðu til embættis landlæknis vegna meintra mistaka við veitingu heilbrigðisþjónustu sem faðir þeirra naut í aðdraganda andláts hans á Landspítala. Af gögnum málsins var ljóst að faðir kærenda hafði leitað til Landspítala með bakverk og Covid-19 sýkingu. Var honum m.a. gefið lyf við sýkingunni sem hafði reynst sjúklingum vel við Covid-19. Kærendur höfðu óskað eftir því að lyfjagjöf yrði stöðvuð með lyfinu og var það gert. Heilsu föður kæranda hrakaði mikið eftir að hann lagðist inn og andaðist hann í kjölfarið á Landspítala. Ekkert kom fram í gögnum málsins eða undir rekstri þess sem benti til þess að vanræksla eða mistök hefðu átt sér stað við veitingu heilbrigðisþjónustunnar. Var málsmeðferð embættisins í málinu staðfest.

    21. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Samið við sjúkraþjálfara eftir fjögurra ára samningsleysi

    Nýr samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Félags sjúkraþjálfara til fimm ára var undirritaður í dag og staðfestur af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra: „Þetta eru mikil tímamót eftir rúmlega fjögurra ára samningsleysi sem hefur bitnað á notendum þjónustunnar. Með samningnum falla niður aukagjöld sem lögð hafa verið á þjónustuþega. Samningurinn stuðlar þannig að auknum jöfnuði. Jafnframt er kveðið á um margvíslegt þróunar- og gæðastarf þjónustunnar í þágu notenda“ segir Willum Þór.

    15. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Skilgreining á fjarheilbrigðisþjónustu leidd í lög

    Frumvarp Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um heilbrigðisþjónustu var samþykkt á Alþingi í gær. Þar með hefur verið leidd í lög skilgreining á hugtakinu fjarheilbrigðisþjónustu, ásamt frekari skýringum á þeirri þjónustu, tæknilausnum, verkefnum og verklagi sem falla undir hugtakið. Fjarheilbrigðisþjónusta er ört vaxandi hluti almennrar heilbrigðisþjónustu. Því er mikilvægt að gildandi löggjöf taki mið af þeirri þróun og einnig að öryggi viðkvæmra persónulegra upplýsinga við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu sé tryggt.

    14. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Takmarkanir á meðferðum til útlitsbreytinga án læknisfræðilegs tilgangs

    Birt hafa verið til umsagnar drög að reglugerð um takmarkanir á meðferðum sem felast í því að breyta útliti fólks án læknisfræðilegs tilgangs. Reglugerðardrögin einskorðast við tilteknar meðferðir, þ.e. sprautun fylliefna undir húð, sem geta valdið einstaklingum skaða ef eitthvað fer úrskeiðis. Hættuminni meðferðir, s.s. húðslípun, húðþétting og örnálameðferðir falla utan gildissviðs reglugerðarinnar.

    13. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa

    Einfaldar tilvísanakerfi fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu

    Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að einfalda fyrirkomulag tilvísana fyrir börn vegna heilbrigðisþjónustu. Drög að reglugerðarbreytingum þessa efnis hafa verið birtar til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Markmiðið er að bæta þjónustu og auka skilvirkni, meðal annars með áherslu á að tími lækna nýtist betur til að sinna beinni þjónustu við sjúklinga.

    07. maí 2024Heilbrigðisráðuneytið, Líf og heilsa, Norrænt samstarf

    Efla þarf norrænt samstarf gegn sýklalyfjaónæmi

    Norrænir heilbrigðisráðherrar eru einhuga um nauðsyn þess að styrkja norrænt samstarf gegn sýklalyfjaónæmi. Svíþjóð fer á þessu ári með formennsku í norrænu ráðherranefndinni og mun m.a. leggja sérstaka áherslu á að tryggja greiðari og öruggari aðgang að sýklalyfjum. Þetta var meðal umræðuefna á árlegum fundi ráðherranna í Stokkhólmi. Stefnt er að því uppfæra og innleiða þverfaglega yfirlýsingu um sýklalyfjaónæmi sem norræna ráðherranefndin samþykkti árið 2015 og fjallar um þessi mál í víðu samhengi.

    • First
    • Prev
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • 14
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband