20. okt. 2020Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Rekstur og eignir ríkisins, Umhverfi og náttúruvernd, Covid-19, Loftslagsmál, Efnahagsmál og opinber fjármál
Ræddi hugmyndir um loftslagsgjöld á fundi OECD
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í dag þátt í fundi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um sjálfbæra þróun þar sem m.a. var rætt um hugmyndir um loftslagsgjöld á landamærum vegna innflutnings frá svæðum sem leggja ekki á kolefnisgjöld eða losunarkvóta og nýtingu gjaldanna í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru. Hugmyndir um slík gjöld eru til skoðunar hjá framkvæmdastjórn Evópusambandsins.