Coat of arms
Stjórnarráð Íslands
  • Verkefni
    • Almannatryggingar og lífeyrir
    • Almannaöryggi
    • Atvinnuvegir
    • Auðlindir
    • Efnahagsmál
    • Félags- og fjölskyldumál
    • Fjarskipti
    • Húsnæðis- og mannvirkjamál
    • Líf og heilsa
    • Kosningar
    • Lög og réttur
    • Mannauðsmál ríkisins
    • Mannréttindi og jafnrétti
    • Menningarmál
    • Menntamál
    • Neytendamál
    • Opinber fjármál
    • Persónuréttur
    • Rekstur og eignir ríkisins
    • Samgöngur
    • Sjálfbært Ísland
    • Skipulagsmál
    • Stjórnskipan og þjóðartákn
    • Sveitarstjórnir og byggðamál
    • Trú og lífsskoðun
    • Umhverfi og náttúruvernd
    • Upplýsingatæknimál ríkisins
    • Utanríkismál
    • Útlendingar
    • Vinnumál
    • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
    • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    EN
    • Verkefni
      • Almannatryggingar og lífeyrir
      • Almannaöryggi
      • Atvinnuvegir
      • Auðlindir
      • Efnahagsmál
      • Félags- og fjölskyldumál
      • Fjarskipti
      • Húsnæðis- og mannvirkjamál
      • Líf og heilsa
      • Kosningar
      • Lög og réttur
      • Mannauðsmál ríkisins
      • Mannréttindi og jafnrétti
      • Menningarmál
      • Menntamál
      • Neytendamál
      • Opinber fjármál
      • Persónuréttur
      • Rekstur og eignir ríkisins
      • Samgöngur
      • Sjálfbært Ísland
      • Skipulagsmál
      • Stjórnskipan og þjóðartákn
      • Sveitarstjórnir og byggðamál
      • Trú og lífsskoðun
      • Umhverfi og náttúruvernd
      • Upplýsingatæknimál ríkisins
      • Utanríkismál
      • Útlendingar
      • Vinnumál
      • Vísindi, nýsköpun og rannsóknir
      • Öll verkefni
    • Efst á baugi
      • Fréttir
      • Nýjast
      • Fyrir fjölmiðla
      • Eldri fréttir
      • Fyrirspurnir frá Alþingi
    • Gögn
      • Rit og skýrslur
      • Úrskurðir og álit
      • Eyðublöð
      • Stefnur og áætlanir
      • Styrkir og sjóðir
      • Hugtakasafn
      • Lög og reglugerðir
      • Málaskrár ráðuneyta
      • Mælaborð
      • Hönnunarstaðall
    • Ráðuneyti
      • Forsætisráðuneytið
      • Atvinnuvegaráðuneytið
      • Dómsmálaráðuneytið
      • Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
      • Fjármála- og efnahagsráðuneytið
      • Heilbrigðisráðuneytið
      • Innviðaráðuneytið
      • Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
      • Mennta- og barnamálaráðuneytið
      • Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
      • Utanríkisráðuneytið
      • Sendiskrifstofur
      • Samstarfsráðherra Norðurlanda
      • Starfsfólk
      • Stofnanir
      • Nefndir
      • Símanúmer og staðsetning ráðuneyta
      • Umbra
    • Ríkisstjórn
      • Skipan ríkisstjórnar
      • Ríkisstjórnarfundir
      • Stjórnarsáttmáli
      • Ráðherranefndir
      • Reglur um starfshætti
      • Reglur um ferðakostnað og starfskjör ráðherra
      • Siðareglur, hagsmunir og hagsmunaverðir
      • Þingmálaskrá
      • Ríkisráð
      • Sögulegt efni
      • Fyrir fjölmiðla
    Close navigation
    Efnisorð
    Efnisorð

    Ekkert fannst

    Tegund
    Tegund

    Leita eftir efnisorðum

    Sýnir 501–550 af 3846
    Raða eftir:
    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 10.-16. mars 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 10. -16

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 3.-9. mars 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 3. -9

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 24. febrúar-2. mars 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 24. febrúar-2

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 17.-23. febrúar 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 17. -23

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 10.-16. febrúar 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 10. -16

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 3.-9. febrúar 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 3. -9

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 27. janúar-2. febrúar 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 27. janúar-2

    08. maí 2025Annað, Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Dagskrá forsætisráðherra 20.-26. janúar 2025

    maí 2025 / Forsætisráðuneytið Dagskrá forsætisráðherra 20. -26

    30. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1272/2025. Úrskurður frá 30. apríl 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að samningi Vestmannaeyjabæjar við Studio Olafur Eliasson um gerð minnisvarða. Með hinni kærðu ákvörðun var kæranda veittur aðgangur að samningnum en strikað hafði verið yfir upplýsingar um kaupverð og viðaukum við samning­inn hald­ið eftir með vísan til 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, þar sem upplýsingarnar vörðuðu mikil­væga virka fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Studio Olafur Eliasson. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ekki hefði verið sýnt fram á að yrðu upplýsingarnar gerðar opinberar myndi það valda Studio Olafur Eliasson tjóni. Þá vörðuðu upplýsingar um kaupverð ráðstöfun opinberra fjármuna sem almenningur hefði hagsmuni af að vera upplýstur um. Var því lagt fyrir Vestmannaeyjabæ að veita kæranda aðgang að samningnum í heild sinni.

    30. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1271/2025. Úrskurður frá 30. apríl 2025

    Deilt var um afgreiðslu sveitarfélags á erindi sem meðal annars fól í sér beiðni um gögn með upplýsingum um aðkomu tveggja starfsmanna að meðferð erindis sem kærendur hefðu beint til sveitarfélagsins. Kæruefni í málinu var afmarkað við gögn sem orðið hefðu til þegar starfsmenn sveitarfélagsins unnu að umsögn fyrir úrskurðarnefnd um upplýsingamál vegna annarra kærumála kærenda hjá nefndinni. Sveitarfélagið teldi að gögnin væru vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefndin taldi að um rétt kærenda til aðgangs að gögnunum færi samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga. Þar sem beiðnin hefði verið afgreidd á röngum lagagrundvelli var henni vísað til sveitarfélagsins til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.…

    30. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1270/2025. Úrskurður frá 30. apríl 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Samgöngustofu sem vörðuðu ábendingar og athuganir á tilteknum flugmanni og félagi. Ákvörðun Samgöngustofu var einkum byggð á því að gögnin vörðuðu einkamálefni flugmannsins sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt samkvæmt 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að með vísan til þess að gögnin vörðuðu grun um að flugmaðurinn hefði gerst sekur um refsiverða háttsemi teldust þau varða einkamálefni hans, og að upplýsingar af því tagi væru samkvæmt almennum sjónarmiðum svo viðkvæmar að þær ættu ekki erindi við þorra manna. Nefndin taldi því að gögnin féllu í heild sinni undir 1. málsl. 9. gr. upplýsingalaga og staðfesti ákvörðun Samgöngustofu.

    30. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1269/2025. Úrskurður frá 30. apríl 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem samanstæðu af samningum sem heilsugæslan gerði um lögfræðiþjónustu á tilteknu árabili. Ákvörðun heilsugæslunnar að synja beiðni kæranda var byggð á því að umfang hennar væri slíkt að heimilt væri að hafna að afgreiða hana samkvæmt 1. tölul. 4. mgr. 15. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að vinna við afgreiðslu beiðninnar myndi leiða til skerðingar á möguleikum yfirstjórnar heilsugæslunnar til að sinna öðrum hlutverkum sínum og að mat heilsu­gæslunnar á þeirri vinnu sem afgreiðsla beiðni kæranda myndi útheimta til viðbótar við þá vinnu sem þegar hefði verið unnin væri raunhæft og nægjanlega vel rökstutt.…

    16. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Innviðaráðuneytið

    Tillögur nefndar um málefni Stranda birtar

    Forsætisráðuneytið hefur birt skýrslu nefndar um málefni Stranda sem var að störfum á síðasta ári.

    16. apr. 2025Rit og skýrslur, Forsætisráðuneytið

    Efling byggða á Ströndum - Tillögur nefndar forsætisráðherra um málefni Stranda

    apríl 2025 / Forsætisráðuneytið Efling byggða á Ströndum - Tillögur nefndar forsætisráðherra um málefni Stranda Efling byggða á Ströndum - Tillögur nefndar forsætisráðherra um málefni Stranda

    11. apr. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Ný stuðningsúrræði fyrir Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar 18. mars sl. var samþykkt tillaga forsætisráðherra um að styðja sérstaklega við tekju- og eignaminni heimili Grindvíkinga tímabundið til áramóta á meðan leitað yrði varanlegri lausna á húsnæðisvanda þeirra. Þá var jafnframt samþykkt tillaga um að styðja við atvinnulíf í bænum gegnum Sóknaráætlun Suðurnesja með sérstöku framlagi ríkisins. Útfærsla viðbótarhúsnæðisstuðnings vegna leiguhúsnæðis liggur nú fyrir og vinna við úrræði fyrir atvinnulíf komin vel á veg.

    10. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Ræður og greinar

    Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ársfundi Seðlabanka Íslands 10. apríl 2025

    apríl 2025 / Forsætisráðuneytið Ávarp Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra á ársfundi Seðlabanka Íslands 10. apríl 2025 Ársfundur Seðlabanka Íslands

    09. apr. 2025Utanríkismál, Evrópusamvinna, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Samstaða og samráð á óvissutímum

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti síðdegis í dag fundi með Ursulu Von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), og António Costa, forseta leiðtogaráðs ESB.

    09. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármálaáætlun, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

    Mikilvægur áfangi um úrbætur í öryggisráðstöfunum

    Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur tekið afgerandi skref um úrbætur í þjónustu og úrræðum fyrir einstaklinga sem sæta þurfa sérstökum öryggisráðstöfunum. Um er að ræða einstaklinga sem geta verið sjálfum sér og öðrum hættulegir en hafa fallið milli þjónustukerfa ríkis og sveitarfélaga. Þessir einstaklingar glíma gjarnan við alvarlegar þroska- og/eða geðraskanir og geta verið ósakhæfir, en einnig sakhæfir sem lokið hafa afplánun og þurfa mikinn stuðning í samfélaginu utan réttarvörslukerfis.

    09. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1268/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem ákvarðanir Alþingis um aðgang að gögnum sættu ekki kæru til nefndarinnar.

    09. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1267/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem erindi kæranda til ríkissaksóknara bæri ekki með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum.

    09. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1266/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningi framkvæmdastjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs var á því byggð að gögnin vörðuðu málefni starfsmanna félagsins og væru því undanþegin aðgangi samkvæmt 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Úrskurðarnefndin taldi að ráðningarsamningar væru gögn í málum sem vörðuðu ráðningu einstakra starfsmanna í starf og því væri almennt heimilt að takmarka aðgang að slíkum samningum á grundvelli upplýsingalaga. Nefndin taldi hins vegar með vísan til þess að framkvæmdastjóri Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs teldist til æðstu stjórnenda félagsins að kærandi ætti rétt til aðgangs að upplýsingum um launakjör hans sem fram kæmu í ráðningarsamningnum. Að öðru leyti var ákvörðun félagsins staðfest.

    09. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1265/2025. Úrskurður frá 9. apríl 2025

    Deilt var um rétt kæranda til aðgangs að tölvupósti í vörslu ríkissaksóknara sem varðaði hann sjálfan. Ríkissaksóknari hafði afhent kæranda tölvupóstinn að hluta, en hafnað beiðni um aðgang að tölvupóstinum í heild með vísan til þess að hann innihéldi upplýsingar sem vörðuðu einkamálefni annarra. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir tölvupóstinn og komst að þeirri niðurstöðu að hagsmunir kæranda af að fá aðgang að tölvupóstinum í heild vægju þyngra en hagsmunir annarra af að upplýsingar í honum færu leynt. Var ríkissaksóknara því gert að veita kæranda aðgang að tölvupóstinum í heild.

    08. apr. 2025Forsætisráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Málefni eldra fólks, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

    Uppbygging ríflega 600 hjúkrunarrýma 2026-2028

    Ráðgert er að afla ríflega 600 nýrra hjúkrunarrýma á árunum 2026-2028, til viðbótar við þau 120 rými sem tekin verða í notkun á þessu ári.

    07. apr. 2025Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Utanríkisráðuneytið, Mannréttindi og jafnrétti, Dómsmálaráðuneytið, Jafnrétti

    Utanríkisráðherra kynnir fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi

    Utanríkisráðherra hefur nú lagt fram fjórðu landsáætlun Íslands um konur, frið og öryggi sem markar stefnu stjórnvalda um framkvæmd samnefndrar ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna númer 1325 og síðari ályktana ráðsins þar að lútandi.

    01. apr. 2025Grindavík, Forsætisráðuneytið

    Skipað að nýju í Grindavíkurnefnd

    Skipað hefur verið að nýju í framkvæmdanefnd vegna jarðhræringa í Grindavíkurbæ. Árni Þór Sigurðsson sendiherra gegnir áfram formennsku í nefndinni en Jóhanna Lilja Birgisdóttir, forstöðumaður fyrir þjónustuteymi Grindvíkinga, og Skarphéðinn Berg Steinarsson, ráðgjafi í atvinnuteymi Grindavíkurbæjar, koma ný inn í nefndina.

    28. mar. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Eindregin samstaða Evrópuríkja með Úkraínu

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tók þátt í fjölmennum leiðtogafundi Evrópuríkja í Elysée-höll í París í gær.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1264/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Úrskurðarnefnd um upplýsingamál barst beiðni um endurupptöku máls sem lauk með úrskurði nefndarinnar nr. 1236/2024 frá 19. desember 2024. Nefndin taldi að skilyrði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, fyrir endurupptöku máls væru ekki uppfyllt. Þá væru ekki heldur skilyrði til endurupptöku málsins á ólögfestum grundvelli. Beiðni um endurupptöku málsins var því hafnað.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1263/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að sundurliðun á öðrum tekjum Ríkisútvarpsins ohf. en af al­mannaþjónustu fyrir árin 2022 og 2023, þar sem nafn greiðanda kæmi fram. Ríkisútvarpið kvað að ekki lægi fyrir gagn með þeirri sundurliðun sem óskað væri eftir og að félaginu væri samkvæmt upplýsingalögum óskylt að útbúa slíkt gagn í tilefni af beiðni kæranda. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafði ekki forsendur til að draga í efa þá staðhæfingu að umbeðið gagn lægi ekki fyrir. Því lægi ekki fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og var ákvörðun Ríkisútvarpsins staðfest.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1262/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Mál þetta varðaði beiðni um aðgang að kauptilboði Mílu hf. í Eygló eignarhaldsfélag ehf. í vörslu Vestmannaeyjabæjar. Í hinni kærðu ákvörðun var beiðninni hafnað þar sem tilboðið hefði að geyma upplýsingar sem vörðuðu mikilvæga fjárhags- eða viðskiptahagsmuni Mílu. Við meðferð málsins hjá úrskurðar­nefndinni kom hins vegar í ljós að hjá Vestmannaeyjabæ lægi ekki fyrir kauptilboð frá Mílu hf. þar sem samskipti um kaup á félaginu hefðu aðeins verið munnleg fram að þeim tíma sem samn­ingsdrög lágu fyrir. Þar sem ekki lægi fyrir synjun beiðni um afhendingu gagna í skilningi 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga var ákvörðun Vestmannaeyjabæjar staðfest.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1261/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu Útlend­inga­stofnunar sem vörðuðu tiltekna um­sókn um alþjóð­lega vernd. Ákvörðun stofnun­arinnar að hafna beiðni kæranda byggðist á því að gögnin vörðuðu einka­málefni umsækjandans sem sanngjarnt væri og eðlilegt að færu leynt samkvæmt 9. gr. upp­lýs­ingalaga, nr. 140/2012. Þá taldi stofnunin ekki unnt að veita aðgang að gögn­unum að hluta, sbr. 3. mgr. 5. gr. laganna, þar sem upplýsingar um einkamálefni væru svo samofnar öðrum upplýs­ing­um að ekki væri unnt að skilja þar á milli. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gögn málsins og staðfesti ákvörðun Útlendingastofnunar.

    27. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1260/2025. Úrskurður frá 27. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gagni í vörslu Sorpu bs. sem innihéldi upplýsingar um topp 20 lögaðila sem hefðu skilað mestum úrgangi til Sorpu í tilgreindum flokkum árin 2021–2023. Ákvörðun Sorpu að hafna beiðni um aðgang að gagninu byggðist á því að mikilvægir almannahagsmunir krefðust þess að að­gang­ur kær­anda að upplýsingunum sé takmarkaður því þær vörðuðu viðskipti Sorpu að því leyti sem Sorpa væri í samkeppni við aðra, og að sanngjarnt væri og eðlilegt að upplýsingarnar færu leynt þar sem þær vörðuðu mikilvæga virka fjárhags- eða við­skiptahagsmuni lögaðilanna. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir gagnið og komst að þeirri niðurstöðu að engin takmörkunarákvæði upplýsingalaga ættu við um upplýsingarnar sem þar kæmu fram. Var Sorpu bs.…

    26. mar. 2025Úkraína, Forsætisráðuneytið

    Forsætisráðherra sækir leiðtogafund um Úkraínu í París

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekur á morgun þátt í leiðtogafundi í París um málefni Úkraínu. Á fundinum munu leiðtogarnir ræða um áframhaldandi stuðning við Úkraínu, viðræður um vopnahlé og hvernig megi tryggja frið og öryggi í Úkraínu til frambúðar. Gestgjafi fundarins er Emmanuel Macron, forseti Frakklands, en um 30 þjóðarleiðtogar sækja fundinn sem haldinn verður í Elysée-höll. ​

    20. mar. 2025Forsætisráðuneytið

    Leiðrétting vegna fréttaflutnings um meintan trúnaðarbrest forsætisráðuneytis

    Fullyrðingar sem fram komu í fréttum RÚV um að forsætisráðuneytið hafi rofið trúnað með upplýsingagjöf til mennta- og barnamálaráðherra eiga ekki við rök að styðjast.

    19. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda

    Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.

    19. mar. 2025Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið

    Samkomulag í höfn milli ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu hjúkrunarheimila og þjónustu við börn með fjölþættan vanda

    Í dag var undirritað samkomulag ríkisins við Samband íslenskra sveitarfélaga; annars vegar um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda og hins vegar um uppbyggingu hjúkrunarheimila. Breytingarnar eru liður í að einfalda verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga og styrkja fjárhag sveitarfélaga og taka gildi um mitt þetta ár.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1259/2025. Úrskurður frá 18. mars 2025

    Kæru var vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál þar sem erindi kæranda til Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. bæri ekki með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1258/2025. Úrskurður frá 18. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu matvælaráðuneytis um mat á sérstöku hæfi starfandi matvælaráðherra til afgreiðslu hans á umsókn Hvals hf. um hvalveiðar. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna gagnabeiðninni var byggð á því að gögnin teldust vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að ráðuneytið hefði ekki afmarkað beiðni kæranda með réttum hætti, með þeim afleiðingum að ekki hefði verið fjallað um rétt til tiltekinna gagna sem tengdust mati á hæfi ráðherrans. Var beiðni kæranda því vísað til matvælaráðuneytis til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1257/2025. Úrskurður frá 18. mars 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að gögnum í vörslu matvælaráðuneytis um þá ákvörðun starfandi matvælaráðherra að aðstoðarmaður hans hefði enga aðkomu að útgáfu leyfa til hvalveiða. Ákvörðun ráðuneytisins að hafna gagnabeiðninni byggðist á því að um vinnugögn væri að ræða. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fór yfir þau gögn sem beiðnin var afmörkuð við og taldi að þau uppfylltu skilyrði upplýsingalaga fyrir að teljast vinnugögn. Því hefði ráðuneytinu verið heimilt að takmarka aðgang að gögnunum og var ákvörðun ráðuneytisins staðfest.

    18. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Grindavík, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

    Framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga

    Á fundi ríkisstjórnar í dag var tekin ákvörðun um framhald stuðningsaðgerða við Grindvíkinga og atvinnurekendur í bænum. Gerðar verða breytingar sem miða að því að færa stuðning úr formi sértækra neyðarúrræða og í almennari farveg. Einstaklingar og fjölskyldur í sérstaklega viðkvæmri stöðu munu áfram njóta nauðsynlegs stuðnings.

    14. mar. 2025Stjórnarráðið, Forsætisráðuneytið

    Breytingar á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands

    Forseti Íslands hefur undirritað þrjá forsetaúrskurði vegna breytinga á skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem taka gildi á morgun, 15. mars. Með þessu fækkar ráðuneytum úr tólf í ellefu en menningar- og viðskiptaráðuneyti verður lagt niður. Þá breytast heiti þriggja ráðuneyta og málaflokkar flytjast milli ráðuneyta.

    07. mar. 2025Alþjóðamál, Öryggis- og varnarmál, Forsætisráðuneytið

    Stóraukning framlaga ESB til varnarmála styrkir NATO

    Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag fjarfund með Antonío Costa, forseta leiðtogaráðs Evrópusambandsins (ESB), Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB, ásamt forsætisráðherrum Noregs, Bretlands, Kanada og forseta Tyrklands.

    06. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Framhald vinnu um hagræðingu og umbætur í ríkisrekstri

    Á fundi ríkisstjórnar þriðjudaginn 4. mars voru kynntar tillögur starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri eftir víðtækt samráð við almenning og stofnanir ríkisins. Samþykkt var að vinnuhópur forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis sem starfaði með hagræðingarhópnum muni vinna áfram að framkvæmd tillagna fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og að ráðuneyti taki mið af vinnunni við gerð fjármálaáætlunar 2026-2030.

    06. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Nefndahúsi fyrir stjórnsýslunefndir komið á fót

    Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að koma á fót sérstöku nefndahúsi sem hýsi stjórnsýslunefndir á vegum ríkisins. Þessi fyrirætlan er í samræmi við tillögu hagræðingarhóps um fækkun nefnda og aukinn samrekstur.

    04. mar. 2025Forsætisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið, Hagsýn í rekstri

    Hagræðingarhópur skilar tillögum til ríkisstjórnar

    Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri skilaði í dag tillögum sínum til ríkisstjórnar og voru þær kynntar á fjölmiðlafundi í forsætisráðuneytinu síðdegis.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið

    Ríkisstjórnin fundaði með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurnesjum

    Ríkisstjórnarfundur var haldinn í Reykjanesbæ í dag. Ríkisstjórnin fundaði einnig með fulltrúum sveitarfélaga á Suðurnesjum og heimsótti öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1256/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um rétt Verðlagsstofu skiptaverðs til aðgangs að gögnum í vörslu Skattsins. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að í því máli sem til umfjöllunar væri teldist Skatturinn ekki hafa tekið ákvörðun um synjun um aðgang að gögnum sem Verð­lags­stofa skiptaverðs gæti sem stjórnvald kært til úr­skurð­arnefndarinnar á grundvelli upp­lýsingalaga. Var kæru Verðlagsstofu skipta­verðs því vísað frá úrskurðarnefndinni.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1255/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um ákvörðun grunnskóla á vegum Reykjavíkurborgar að synja beiðni um aðgang að tilteknum tölvupósti í vörslu skólans, sem varð til við meðferð máls sem lauk með ákvörðun um að veita kæranda aðgang að upplýsinga- og skráningarkerfinu Mentor fyrir barn­ sitt. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að sú ákvörðun væri um rétt eða skyldu, sbr. 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Upplýsingalögin tækju því ekki til aðgangs að tölvupóstinum, sbr. 2. mgr. 4. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og var kærunni vísað frá.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1254/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Málið varðaði beiðni um aðgang að nöfnum höfunda og ábyrgðarfólks verkefnis í vörslu Háskólans á Bifröst. Ákvörðun háskólans að synja beiðninni var meðal annars byggð á að verkefnið varðaði einkamálefni þeirra nemenda sem bæru ábyrgð á því. Úrskurðarnefndin taldi að þótt verkefnið hefði ekki að geyma upplýsingar um persónu­leg málefni nemendanna væri ljóst að verkefnið sem slíkt væru upplýsingar sem endurspegluðu persónu­legt fram­lag í námi þeirra, og að þeir hefðu mátt ganga út frá því að verk­efnið sem deilt er um að­gang að kæmi ekki fyrir sjónir almennings. Var ákvörðun Háskólans á Bifröst því staðfest.

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1253/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um rétt kærenda til aðgangs að gögnum á því formi sem þau væru varðveitt, en fyrir lá að þeim hafði verið afhent gögn á öðru formi. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að röksemdir hins kærða stjórnvalds fyrir synjun beiðninnar ætti sér ekki stoð í 18. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, sem varðar afhendingu gagna samkvæmt lögunum. Þá taldi úrskurðarnefndin að lýsigögn gagna á því formi sem þau væru varðveitt gætu ekki talist vinnugögn í skilningi upplýsingalaga. Þar sem úrskurðarnefndinni voru ekki afhent gögnin á því formi sem þau eru varðveitt var nefndinni ókleift að leggja mat á rétt kærenda til aðgangs að þeim, og var beiðni kærenda því vísað til hins kærða stjórnvalds til nýrrar meðferðar og afgreiðslu.…

    28. feb. 2025Forsætisráðuneytið, Úrskurðarnefnd um upplýsingamál, Úrskurðir

    1252/2025. Úrskurður frá 28. febrúar 2025

    Deilt var um rétt til aðgangs að frásögnum og greinargerðum starfsmanna sem urðu til í tengslum við rannsókn á kvörtun kæranda um einelti. Úrskurðarnefnd um upplýsingamál taldi að um rétt kæranda til aðgangs að gögnunum færi samkvæmt 14. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012. Í gögnunum var að finna lýsingar starfsmannanna á persónulegri upplifun og skoðunum þeirra, sem úrskurðarnefndin taldi að væru viðkvæmar upplýsingar um einkamálefni starfsmannanna. Var það mat nefndarinnar að þótt kærandi hefði hagsmuni af að fá aðgang að gögnunum vægju hagsmunir starfsmannanna af að gögnin færu leynt þyngra á metunum. Hin kærða ákvörðun var því staðfest.

    • First
    • Prev
    • 9
    • 10
    • 11
    • 12
    • 13
    • Next
    • Last
    Logo
    • Um vefinn
    • Áskrift
    • Veftré
    • Fyrirvari
    +354 545 8000
    Staðsetning ráðuneyta, opnunartími og netföng
    Hafa samband

    Hafa samband