16. október 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Fæðingarorlof: Foreldrar sem störfuðu í öðru EES-ríki kunna að eiga rétt á skaðabótum

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Vinnumálastofnun vekja athygli á dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 50/2025 frá 23. september sl. þar sem íslenska ríkinu var gert að greiða stefnanda skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. Dómurinn varðaði útreikning á meðaltali heildarlauna í þeim tilfellum þar sem foreldri starfaði í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Þeir foreldrar sem störfuðu að hluta eða öllu leyti á 12 mánaða viðmiðunartímabili fæðingarorlofs í öðru aðildarríki að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið og fengu greitt fæðingarorlof á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025 kunna að eiga rétt á skaðabótum á grundvelli niðurstöðu dómsins. Það á þó einungis við ef viðkomandi starfaði skemur en fjóra mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabili við útreikning á meðaltali heildarlauna.

Hver getur átt rétt á skaðabótum?

Foreldrar sem uppfylla öll neðangreind skilyrði kunna að eiga slíkan rétt:

  1. Fengu greitt úr Fæðingarorlofssjóði á tímabilinu september 2022 til og með júní 2025.
  2. Störfuðu skemur en 4 mánuði á innlendum vinnumarkaði á 12 mánaða viðmiðunartímabilinu sem notað er við útreikning á meðaltali heildarlauna.
  3. Störfuðu í öðru EES-ríki á viðmiðunartímabilinu.

Foreldrar sem telja sig verr setta hvað fjárhæð greiðslna úr sjóðnum varðar vegna flutnings til landsins og að þeir eigi rétt til skaðabóta á grundvelli dóms Hæstaréttar Íslands í máli nr. 50/2025 geta beint kröfum sínum til Vinnumálastofnunar. Vinnumálastofnun tekur á móti umsóknunum. Þegar stofnunin hefur aflað tilskilinna gagna verða upplýsingarnar sendar til Ríkislögmanns sem tekur ákvörðun um rétt til greiðslu skaðabóta fyrir hönd íslenska ríkisins.