16. október 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Endurskoðuð drög að reglugerð um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku til kynningar í Samráðsgátt

{image.Description}

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett drög að reglugerð um framkvæmd ákvæða raforkulaga um gagnsæi og háttsemi á heildsöluorkumarkaði raforku til kynningar að nýju í Samráðsgátt stjórnvalda.

Fyrri drög að reglugerðinni voru kynnt í Samráðsgátt sumarið 2026 og bárust við þau ýmsar athugasemdir. Ráðuneytið tók athugasemdirnar til ítarlegrar skoðunar og hefur í kjölfarið endurskoðað drögin verulega. Reglugerðardrögin eru því nú sett fram til kynningar á ný.

Meðal þeirra breytinga sem gerðar hafa verið er að ákvæði um viðurkennda markaðsframkvæmd hafa verið einfölduð og færð nær orðalagi raforkulaga. Þá hefur fyrirkomulag gagnaskila verið endurskoðað og skýrari greinarmunur gerður á gagnaskilum samkvæmt 20. gr. i og annarri upplýsingagjöf sem Raforkueftirlitið getur krafist á grundvelli 25. gr. laganna. Enn fremur hefur í tengslum við tæknilegar útfærslur gagnaskila verið vísað til leiðbeininga Raforkueftirlitsins í meira mæli en áður.

Reglugerðardrögin taka til framkvæmdar 20. gr. a – 20. gr. í raforkulögum nr. 65/2003. Þar er meðal annars fjallað um opinbera birtingu innherjaupplýsinga og frestun birtingar þeirra, viðurkennda markaðsframkvæmd, gagnaskil og aðra upplýsingagjöf til Raforkueftirlitsins, fyrirbyggingu og greiningu markaðssvika og tilkynningar um grunsamleg viðskipti.

Reglugerðardrögin eru sett fram í kjölfar samþykktar raforkulaga nr. 45/2026, þar sem lögfest voru ákvæði um meðal annars bann við innherjasvikum, ólögmætri miðlun innherjaupplýsinga og markaðsmisnotkun í viðskiptum með heildsöluorkuafurðir.

Athygli er vakin á að umsagnarfrestur í Samráðsgátt er til og með 27. október 2026.

Endurskoðuð drög að reglugerð um framkvæmd 20. gr. a–20. gr. i raforkulaga nr. 65/2003