Úrskurður nr. 387/2026
Hinn 4. september 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 387/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU26010083
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 23. janúar 2026 kærði karlmaður að nafni [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. janúar 2026, um brottvísun og endurkomubann til Íslands í fjögur ár.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi en til vara krefst hann þess að endurkomubanninu verði markaður skemmri tími.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, ásamt síðari breytingum, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Í skýrslum lögreglu, dags. 17. og 21. janúar 2026, kemur m.a. fram að kærandi hafi verið handtekinn vegna gruns um skjalafals. Kærandi hafi framvísað albönsku vegabréfi auk falsaðs grísks vegabréfs. Fram kemur að kærandi hafi aflað sér kennitölu og verið skráður í Þjóðskrá Íslands undir því auðkenni sem fram hafi komið í hinu falsaða vegabréfi. Samkvæmt skráningum í tekjubókhaldi ríkisins hafi kærandi þegið laun hjá íslenskum fyrirtækjum frá febrúar 2025 til desember sama ár. Einnig kemur fram að kærandi hafi gengið í hjúskap með íslenskum ríkisborgara 11. desember 2025 og lagt fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskaparins hjá Útlendingastofnun sama dag. Kærandi hafi því lagt fram umsóknina í ólögmætri dvöl þar sem hann hafi ekki haft gilt dvalarleyfi og dvalið óslitið á Íslandi frá febrúar 2024.
Í kjölfar skýrslutöku var kæranda birt tilkynning um hugsanlega brottvísun og endurkomubann 17. janúar 2026. Í tilkynningunni kom fram að kærandi hefði brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laga um útlendinga og gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar. Í samræmi við 12. gr. laga um útlendinga og 13. gr. stjórnsýslulaga var kæranda veittur þriggja daga frestur til að leggja fram skrifleg andmæli. Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi ekki fram andmæli til Útlendingastofnunar. Í ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 22. janúar 2026, kemur fram að kæranda sé vísað brott frá Íslandi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og ákveðið endurkomubann til fjögurra ára, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt fyrir kæranda 23. janúar 2026 og kærð til kærunefndar sama dag. Gögn málsins bárust frá Útlendingastofnun 26. janúar 2026. Hinn 4. mars 2026 barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjali. Kæranda var fylgt til heimaríkis með heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra 16. febrúar 2026.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur m.a. fram að kærandi hafi starfað hér á landi sem [...] frá ágúst 2025. Kærandi viðurkenni að hafa notað falsað grískt vegabréf, sem hann hafi greitt 5.000 evrur fyrir, til að starfa og sinna bankaviðskiptum hér á landi. Síðan brot kæranda hafi átt sér stað hafi aðstæður hans breyst. Hinn 11. desember 2025 hafi kærandi gengið í hjúskap með íslenskum ríkisborgara og í kjölfarið hafi kærandi lagt fram umsókn um dvalarleyfi hér á landi á grundvelli þess að vera aðstandandi íslensks ríkisborgara. Þessi fjölskyldutengsl myndi eðlileg og lögmæt tengsl kæranda við Ísland og skapi honum réttmætar væntingar til áframhaldandi dvalar hér á landi. Fullyrðing Útlendingastofnunar um að hjúskapur sem stofnað sé til í ólögmætri dvöl geti ekki skapað réttmætar væntingar til dvalarleyfis hér á landi gangi gegn þeirri grundvallarreglu að mannréttindi njóti verndar óháð fyrri háttsemi einstaklingsins. Ríkisvaldinu beri jákvæð skylda til að virða og vernda fjölskyldulíf einstaklinga og ákvörðun um brottvísun, sem hafi í för með sér langvarandi aðskilnað hjónanna, verði að vera í fullu samræmi við meðalhófsregluna. Kærunefnd hafi í úrskurðum sínum lagt áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld framkvæmi ítarlegt og einstaklingsbundið mat á því hvort brottvísun sé ósanngjörn ráðstöfun í ljósi hjúskapar og annarra fjölskyldutengsla. Þrátt fyrir alvarleika brota kæranda verði að vega hagsmuni ríkisins af brottvísun á móti þeim verulegu og óafturkræfu áhrifum sem hún hafi á fjölskyldulíf kæranda og maka hans. Þá sé ljóst að brottvísun og fjögurra ára endurkomubann sé ósanngjörn og óhófleg ráðstöfun gagnvart kæranda og maka hans og því beri að fella hana úr gildi.
Í greinargerð kæranda kemur fram að heimilt sé samkvæmt 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga að fella endurkomubann úr gildi ef aðstæður hafi breyst frá því að ákvörðun um brottvísun hafi verið tekin, þótt ekki fyrr en að tveimur árum liðnum. Þótt kærandi hafi gerst sekur um alvarleg brot verði að taka tillit til þess að hjúskapur við íslenskan ríkisborgara sé veruleg breyting á aðstæðum sem gefa ætti tilefni til endurmats á endurkomubanninu. Um sé að ræða grundvallarbreytingu á persónulegum högum kæranda sem hafi djúpstæð áhrif á fjölskyldulíf hans og maka hans. Fjögurra ára endurkomubann sé verulega íþyngjandi og komi í veg fyrir eðlilegt fjölskyldulíf kæranda og maka. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar þar sem endurkomubann aðila í því máli hafi verið stytt. Þá hafi kærunefnd ítrekað lagt áherslu á mikilvægi þess að stjórnvöld rannsaki mál vel og gefi aðilum færi á andmælum, sérstaklega þegar fjölskyldutengsl séu til staðar, sbr. úrskurð nr. 780/2025. Í máli kæranda hafi Útlendingastofnun verið meðvituð um hjúskap kæranda, sem stofnaður hafi verið til 11. desember 2025, áður en ákvörðun hafi verið tekin 22. janúar 2026. Þrátt fyrir þessa vitneskju hafi stofnunin metið það svo að hjúskapurinn hafi ekki skapað réttmætar væntingar til dvalarleyfis þar sem kærandi hafi verið í ólögmætri dvöl þegar hann hafi verið stofnaður. Telur kærandi að mat Útlendingastofnunar á þýðingu og áhrifum hjúskaparins á meðalhóf brottvísunarinnar hafi verið ófullnægjandi og óréttmætt. Stjórnvöldum beri skylda til að framkvæma ítarlegt og einstaklingsbundið meðalhófsmat samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga þar sem hagsmunir fjölskyldulífs séu metnir að verðleikum, jafnvel þótt stofnað hafi verið til hjúskapar í ólögmætri dvöl. Telur kærandi að með því að vísa hjúskap kæranda á bug á þeim grundvelli einum að til hans hafi verið stofnað í ólögmætri dvöl hafi Útlendingastofnun ekki fullnægt rannsóknarreglu og meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar, sbr. 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. er heimilt að vísa útlendingi úr landi sem er án dvalarleyfis ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna, hefur af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögunum eða kemur sér hjá því að hlíta ákvörðun sem felur í sér að hann skuli yfirgefa landið. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að í b-lið felist heimild til að vísa útlendingi brott ef hann hefur brotið alvarlega eða margsinnis gegn einu eða fleiri ákvæðum laganna. Hér undir myndu sem fyrr geta fallið fleiri en eitt brot gegn lögunum sem hvert fyrir sig teldist ekki alvarlegt.
Útlendingastofnun lagði til grundvallar að kærandi hafi starfað ólöglega hér á landi án tilskilinna atvinnu- og dvalarleyfa, sbr. 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga. Taldi stofnunin að upplýsingar frá lögreglu væru skýrar og afdráttarlausar um að kærandi hafi komið hingað til lands í þeim tilgangi að starfa án tilskilinna heimilda og jafnframt villt á sér heimildir með notkun falsaðra skilríkja. Hafi kærandi þannig framvísað fölsuðu grísku vegabréfi til vinnuveitanda síns og Þjóðskrár Íslands sem hafi orðið grundvöllur útgáfu kennitölu. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar að heimilt væri að brottvísa kæranda á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga þar sem hann hafi brotið alvarlega gegn ákvæðum laga um útlendinga og af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi gefið efnislega rangar eða augljóslega villandi upplýsingar í máli samkvæmt lögum um útlendinga.
Í skýrslum lögreglu frá 17. og 21. janúar 2026 kemur m.a. fram að húsleit hafi verið framkvæmd á heimili kæranda 17. janúar 2026 vegna mála tengdum sambýlismönnum hans. Við húsleit hafi albanskt vegabréf kæranda sem og falsað grískt vegabréf í hans eigu fundist. Kærandi hafi verið handtekinn sama dag og færður til skýrslutöku vegna gruns um skjalafals og brot á lögum um útlendinga. Í skýrslutöku hafi kærandi greint frá því að hafa starfað hér á landi sem [...] í tvö ár auk þess sem hann hafi gengið í hjúskap með íslenskri konu 11. desember 2025. Fram kemur í skýrslu lögreglu frá 17. janúar 2026 að við skoðun á stimplum í albanska vegabréfinu hafi mátt sjá útstimpil frá Svíþjóð, dags. 25. febrúar 2024, sem hafi passað við eldra mál í kerfi lögreglu þar sem kæranda hafi verið frávísað við komu til landsins 25. febrúar 2024 á grundvelli c- og d-liðar 106. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt stimplum í vegabréfi kæranda hafi hann komið hingað til lands strax daginn eftir frá Grikklandi og samkvæmt framburði kæranda við skýrslutöku dvalið hér á landi síðan. Í skýrslu lögreglu frá 21. janúar 2026 kemur fram að grunur leiki á að kærandi hafi starfað hér á landi undir röngu auðkenni. Kærandi hafi útvegað sér íslenska kennitölu á grundvelli hins falsaða vegabréfs og þegið laun hjá íslensku fyrirtæki frá júlí 2025 til desember 2025 samkvæmt skráningum í tekjubókhaldi ríkisins. Þar áður hafði hann þegið laun hjá öðru fyrirtæki frá og með febrúar 2025 til og með júní 2025. Einnig kemur fram að grunur leiki á að kærandi hafi gengið í hjúskap með íslenskum ríkisborgara í þeim eina tilgangi að afla hér dvalarleyfis. Kærandi hafi lagt fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar hjá Útlendingastofnun sama dag og hann hafi gengið í hjúskap. Kærandi hafi ekki haft gilt dvalarleyfi á Íslandi þegar hann hafi lagt fram umsóknina auk þess sem hann hafi verið búinn að dvelja á Schengen-svæðinu í 655 daga þegar skýrslutakan fór fram.
Af gögnum málsins er ljóst að kærandi kom til landsins í lok febrúar 2024 á grundvelli heimildar hans sem ríkisborgari Albaníu til að dvelja á Íslandi í allt að 90 daga, án þess að afla sér vegabréfsáritunar, dvaldi ólöglega umfram þá heimild og lagði fram umsókn um dvalarleyfi vegna hjúskapar í ólögmætri dvöl. Kærandi var færður úr landi 16. febrúar 2026. Samkvæmt skýrslutöku kæranda hjá lögreglu, dags. 17. janúar 2026, kvaðst kærandi hafa komið til Íslands til að starfa hér á landi án tilskilinna réttinda og þiggja laun fyrir. Játaði kærandi að hafa aflað sér falsaðs vegabréfs til að fá starf hér á landi og stofna bankareikning. Þá er ljóst af gögnum málsins að kærandi framvísaði fölsuðu vegabréfi til Þjóðskrár til að fá útgefna kennitölu. Af framburði kæranda og gögnum málsins er ljóst að hann hafi verið grandsamur um að háttsemi hans, dvöl og atvinna hér á landi væri ólögmæt.
Samkvæmt 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga þarf útlendingur sem hyggst ráða sig til starfa hér á landi að hafa dvalarleyfi auk atvinnuleyfis þar sem það er áskilið í lögum um atvinnuréttindi útlendinga. Samkvæmt meginreglum laga um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002 ber erlendum ríkisborgurum almennt að hafa atvinnuleyfi til starfa hér á landi en frá því eru undanþágur sem mælt er fyrir um í III. kafla laganna. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi sé undanþeginn því að hafa dvalar- og atvinnuleyfi til þess að starfa á Íslandi. Ljóst er af 2. mgr. 50. gr. laga um útlendinga, sbr. ákvæði laga um atvinnuréttindi útlendinga, að kæranda var óheimilt að stunda atvinnu hér á landi án atvinnuleyfis. Atvinnustarfsemi án viðhlítandi heimildar hefur neikvæð áhrif á aðilann sjálfan, þá sem kaupa af honum þjónustu, og íslenskt samfélag í heild. Slík háttsemi er til þess fallin að grafa undan íslenskum vinnumarkaði með hliðsjón af réttindum og réttaröryggi launþega. Þar að auki eru þjónustukaupendur í ótryggri stöðu og grafið er undan greiðslu skatta og annarra opinberra gjalda til ríkissjóðs. Þá er ljóst af gögnum málsins, m.a. framburði kæranda, að hann hafi haft í vörslum sínum falsað grískt vegabréf og framvísað því hjá Þjóðskrá í þeim tilgangi að afla sér réttar til dvalar hér á landi sem EES-borgari. Með því braut kærandi gegn ákvæðum XI. kafla laga um útlendinga. Þá er varsla falsaðs vegabréfs alvarlegt brot gegn lögum um útlendinga, enda mælir ákvæði 116. gr. laga um útlendinga fyrir um sekt eða fangelsi allt að tveimur árum við slíku broti. Að teknu tilliti til framangreinds teljast brot kæranda gegn lögum um útlendinga alvarleg og eru skilyrði til brottvísunar samkvæmt b-lið 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Málatilbúnaður kæranda hjá kærunefnd byggist einkum á því að þrátt fyrir alvarleika brota hans verði að vega hagsmuni ríkisins af brottvísun á móti þeim verulegu og óafturkræfu áhrifum sem hún hafi á fjölskyldulíf kæranda og maka hans.
Í 102. gr. laga um útlendinga er kveðið á um vernd gegn frávísun og brottvísun og takmarkanir á ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. skal brottvísun ekki ákveða ef hún, með hliðsjón af málsatvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Samkvæmt gögnum málsins gekk kærandi í hjúskap með íslenskum ríkisborgara 11. desember 2025 og lagði fram umsókn um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar sama dag. Eins og fram hefur komið lagði kærandi fram umsókn sína þegar hann var hér á landi í ólögmætri dvöl en samkvæmt gögnum málsins var kærandi búinn að dvelja á Schengen-svæðinu frá 26. febrúar 2024 eða í 655 daga, en honum var heimil 90 daga dvöl án dvalarleyfis. Var kærandi þannig meðvitaður um að hann væri í ólögmætri dvöl þegar hann lagði fram umsókn um dvalarleyfi fyrir maka. Af umsókn kæranda um dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar má ráða að hann og maki hans hafi hist á bar 27. maí 2024 og verið í sambandi síðan. Þá liggur fyrir að kærandi og maki hans hafa ekki verið í sambúð á þeim tíma sem þau kveðast hafa verið í sambandi auk þess sem maki hans var í hjúskap með öðrum manni fram til 1. desember 2025. Mátti kæranda og maka hans báðum vera ljóst frá fyrstu kynnum að kærandi hefði ekki heimild til dvalar hér á landi. Með vísan til framangreinds telur kærunefnd að gögn málsins bendi ekki til þess að kærandi hafi myndað fjölskyldutengsl hér á landi sem leiði til þess að skilyrði 3. mgr. 102. gr. séu uppfyllt. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda er í samræmi við lög og tilgangur hennar er að framfylgja lögmætum markmiðum laga um útlendinga. Stendur 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir brottvísun kæranda.
Í 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga kemur fram að endurkomubann skuli að jafnaði ekki vara lengur en fimm ár og eigi skemur en tvö ár. Þó geti endurkomubann varað lengur en fimm ár þegar útlendingur telst ógn við öryggi ríkisins, almannaöryggi eða allsherjarreglu. Við ákvörðun um lengd endurkomubanns skuli litið til einstaklingsbundinna aðstæðna hverju sinni. Í hinni kærðu ákvörðun var kæranda gert að sæta endurkomubanni til fjögurra ára. Að teknu tilliti til atvika málsins, einkum lengdar ólögmætrar dvalar kæranda og ásetnings hans til að stunda atvinnustarfsemi án þess að hafa atvinnuleyfi, m.a. með framvísun falsaðs vegabréfs, er fjögurra ára endurkomubann kæranda staðfest.
Hvað varðar tilvísun kæranda til úrskurðar kærunefndar nr. 606/2025 í því sambandi að endurkomubann aðila hafi verið stytt bendir kærunefnd á að í því máli var ákvörðun Útlendingastofnunar um lengd endurkomubanns staðfest. Þá voru málsatvik og aðstæður aðila í öðrum úrskurðum sem nefndir eru í greinargerð ósambærileg þeim sem uppi eru í máli kæranda.
Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga skal að jafnaði veita útlendingi frest í 7-30 daga til að yfirgefa landið sjálfviljugur. Samkvæmt e-lið ákvæðisins er m.a. heimilt að veita styttri frest eða fella hann niður í tilvikum þegar útlendingi er vísað úr landi á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Að teknu tilliti til málsatvika er rétt að fella frest kæranda til sjálfviljugrar heimfarar niður með vísan til e-liðar 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Er einnig litið til þess að endurkomubanni er m.a. bæði ætlað að hafa almenn og sérstök varnaðaráhrif gagnvart brotum á ákvæðum laga um útlendinga. Að teknu tilliti til 4. mgr. 101. gr. laga um útlendinga hófst endurkomubann kæranda þegar hann var færður úr landi 16. febrúar 2026.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu verður hin kærða ákvörðun hvað varðar brottvísun kæranda frá landinu á grundvelli b-liðar 1. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og niðurfellingu frests til þess að yfirgefa landið sjálfviljugur staðfest. Endurkomubann kæranda skal vera fjögur ár.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Þorsteinn Gunnarsson
Jóna Aðalheiður Pálmadóttir