16. október 2026 /
Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra endurnýjar samstarfssamning um Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, og Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir, formaður stjórnar Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur endurnýjað samstarfssamning utanríkisráðuneytisins við Slysavarnarfélagið Landsbjörgu um Íslensku alþjóðabjörgunarsveitina (ÍA), sem rann út árið 2021. Markmið samningsins er að tryggja viðbúnað og viðhalda getu björgunarsveitarinnar til að taka þátt í alþjóðlegum björgunaraðgerðum og mannúðarviðbrögðum í samræmi við alþjóðlega staðla.

Samningurinn gildir til ársloka 2028 og leggur grunn að markvissum undirbúningi sveitarinnar fyrir endurnýjaða alþjóðlega jafningjavottun árið 2029.

„Við Íslendingar berum mikla virðingu fyrir því óeigingjarna starfi sem björgunarfólkið okkar sinnir hér, á þessari afskekktu eldfjallaeyju í Norður-Atlantshafi. Hér getur veðurfarið verið harðneskjulegt og öflug náttúruöflin eru hluti af okkar daglega lífi. Þessi nána sambúð með náttúrunni hefur kennt okkur mikilvægi undirbúnings og viðbúnaðs, samvinnu og samstarfs,“ segir Þorgerður Katrín. „Þessi  íslenskaþekking og reynsla sem og fyrirhuguð vottun Íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar á alþjóðavísu, mun gera okkur betur kleift að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi, leggja okkar lið, þegar hamfarir ríða yfir úti í hinum stóra heimi.“

Mikilvægt framlag til alþjóðlegra björgunaraðgerða

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin starfar í umboði íslenska ríkisins og byggir á sérhæfðri þekkingu íslensks björgunarsveitarfólks og annarra viðbragðsaðila. Verkefni sveitarinnar geta meðal annars falist í leit og björgun fólks úr húsarústum, sjúkraaðstoð, fjarskiptum og rekstri neyðarbúða á hamfarasvæðum.

Upphaf sveitarinnar má rekja til jarðskjálftans í Tyrklandi í ágústmánuði árið 1999, þegar sjö manna íslenskur björgunarhópur var sendur til landsins, en reynslan af þeirri aðgerð lagði grunn að stofnun alþjóðabjörgunarsveitarinnar. Fyrsti samstarfssamningurinn um sveitina var undirritaður í mars árið 2000.

Frá stofnun hefur sveitin tekið þátt í sjö alþjóðlegum verkefnum. Meðal umfangsmestu aðgerða hennar var þátttaka í björgunarstarfi í kjölfar jarðskjálftans á Haítí árið 2010.